Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli

Undirritunardagur

14. nóvember 2024

Útgáfudagur

21. nóvember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1302/2024

14. nóvember 2024

REGLUGERÐ

um (6.) breytingu á reglugerð nr. 237/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um vernd heita á víni skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1216 frá 22. apríl 2024 um að veita heitinu „Wiener Gemischter Satz“ (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 228/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 848.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1228 frá 23. apríl 2024 um að veita heitinu „Ruster Ausbruch“ (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 228/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 849.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2024

Tengd mál