Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sóttvarnir
Undirritunardagur
31. ágúst 2026
Útgáfudagur
16. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1000/2026
31. ágúst 2026
REGLUGERÐ
um smitsjúkdóma og tilkynningarskylda sjúkdóma eða atburði sem falla undir sóttvarnalög.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi kveður á um hvaða smitsjúkdómar og sjúkdómar af völdum eiturefna og geislavirkra efna falla undir sóttvarnalög, nr. 40/2026. Jafnframt hvaða sjúkdómar, sjúkdómsvaldar og atburðir eru tilkynningarskyldir til sóttvarnalæknis, sbr. fylgiskjal.
2. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja virkt og samræmt eftirlit með sjúkdómum, sjúkdómsvöldum og atburðum sem ógnað geta almannaheill. Upplýsingar sem aflað er samkvæmt reglugerð þessari skulu nýtast sóttvarnalækni til faraldsfræðilegrar vöktunar, greiningar, smitrakningar og annarra lögbundinna sóttvarnaaðgerða.
3. gr. Tilkynningarskylda.
Með tilkynningarskyldu er átt við skyldu til að senda sóttvarnalækni persónugreindar upplýsingar um sjúkling eða sjúkdómstilvik. Tilkynningu um tilkynningarskyldan sjúkdóm, sjúkdómsvald eða óvænta atburði sem ógnað geta heilsu manna skal senda sóttvarnalækni án tafar.
Heilbrigðisstarfsfólki er skylt að skrá upplýsingar um tilkynningarskylda sjúkdóma á þar til gerð eyðublöð eða með stafrænum hætti samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis. Sama gildir um forstöðumenn rannsóknastofa, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana.
Sóttvarnalæknir heldur farsóttaskrá yfir tilkynningarskylda sjúkdóma sem nýtist til faraldsfræðilegra greininga, vöktunar, smitrakningar og annarra lögbundinna verkefna.
Sóttvarnalækni er heimilt, í þágu faraldsfræðilegrar vöktunar og greiningar á útbreiðslu sjúkdóma, að afla ópersónugreinanlegra tölfræðiupplýsinga um tíðni sjúkdóma og einkenna úr stafrænum sjúkraskrárkerfum og heilbrigðisskrám. Heilbrigðisstofnunum og öðrum þeim sem veita heilbrigðisþjónustu er skylt að verða við beiðni sóttvarnalæknis um afhendingu tölfræðiupplýsinga um smitsjúkdóma sem meðhöndlaðir hafa verið á heilbrigðisstofnun eða hjá öðrum þeim sem veita heilbrigðisþjónustu.
Sóttvarnalæknir gefur nánari fyrirmæli um tilhögun skráningar og tilkynninga í smitsjúkdómaskrá og skrá um sýklalyfjanotkun, meðal annars um hvaða ráðstafanir skuli viðhafðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga varðandi tilkynningarskylda sjúkdóma.
4. gr. Smitsjúkdómar og sjúkdómar af völdum eiturefna og geislavirkra efna.
Undir sóttvarnalög, nr. 40/2026, falla smitsjúkdómar og sjúkdómar af völdum eiturefna og geislavirkra efna, sbr. fylgiskjal. Sjúkdómar þessir eru jafnframt tilkynningarskyldir til sóttvarnalæknis.
5. gr. Tilkynningarskyldir atburðir.
Tilkynna skal tafarlaust til sóttvarnalæknis um sérhverja þá atburði sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar innan lands eða á meðal þjóða heims, þ.m.t. atburði af óþekktri orsök eða uppruna og óvænt aukning sjúkdómstilfella eða dauðsfalla.
6. gr. Upplýsingar um sýklalyfjanotkun.
Sóttvarnalæknir heldur skrá um notkun fólks á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum. Sóttvarnalæknir fær afhentar upplýsingar úr lyfjagagnagrunni landlæknis og frá heilbrigðisstofnunum til að halda skrá um sýklalyfjanotkun. Upplýsingarnar skulu vera ópersónugreinanlegar. Forstöðumönnum heilbrigðisstofnana er skylt að senda sóttvarnalækni upplýsingar um magn sýklalyfja sem notað er á viðkomandi stofnun, skipt eftir deildum þar sem það á við.
7. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. gr., 1. mgr. og 1.-3. tölul. 2. mgr. 40. gr. laga nr. 40/2026 og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um skýrslugerð vegna sóttvarna, nr. 221/2012.
Heilbrigðisráðuneytinu, 31. ágúst 2026.
Alma D. Möller.
Guðlaug Einarsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. september 2026