Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Hlutafélög

Undirritunardagur

6. september 2013

Útgáfudagur

24. september 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 848/2013

6. september 2013

AUGLÝSING

um almenna undanþágu frá búsetuskilyrðum hlutafélagalöggjafarinnar.

Ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra samkvæmt auglýsingu þessari er einkum ætlað að vera til hagræðis ríkisborgurum og lögaðilum frá öðrum OECD-ríkjum en þeim sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið en getur einnig komið að notum þeim ríkisborgurum og lögaðilum EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyingum og færeyskum lögaðilum sem heimilisfastir eru utan Evrópska efnahagssvæðisins, landsvæðis stofnsamningsins og Færeyja. Þeir ríkisborgarar og lögaðilar EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyingar og færeyskir lögaðilar, sem heimilisfastir eru á Evrópska efnahagssvæðinu, landsvæði stofnsamningsins eða í Færeyjum, njóta þegar undanþágu á grundvelli laga.

Í ákvörðuninni, sem geymir undanþágu frá 3., 66., 137. og 140. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 3., 42., 111. og 114. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, felst nánar tiltekið að ríkisborgarar OECD-ríkja, EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyingar þurfa ekki að vera heimilisfastir hér á landi til að geta verið stofnendur, stjórnarmenn og framkvæmdastjórar íslenskra hluta- eða einkahlutafélaga eða útibússtjórar erlendra hluta- eða einkahlutafélaga á Íslandi heldur nægir að ríkisborgararnir séu heimilisfastir í einhverju OECD-ríkja, EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum.

Þá þurfa hlutafélög og önnur félög og stofnanir, sem standa að stofnun hluta- eða einkahlutafélaga hér á landi og vísað er til í 3. gr. hluta- og einkahlutafélagalaga, ekki að vera heimilisföst hér á landi heldur nægir að þau séu heimilisföst í OECD-ríki, EES-ríki, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum. Loks geta erlend hluta- og einkahlutafélög og félög í samsvarandi lagalegu formi, sem eiga lögheimili og varnarþing í einhverju OECD-ríkja, EES-ríkja, aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum, stundað starfsemi með rekstri útibús hér á landi.

Í vafatilvikum getur hlutafélagaskrá, sem umsóknir um skráningu hluta- eða einkahlutafélaga eru sendar til, þó borið einstök mál undir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Eftirtalin OECD-ríki, EES-ríki, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyja falla undir undanþágureglu laga og auglýsingarinnar samkvæmt framansögðu miðað við 1. september 2013:

Austurríki Ísrael Portúgal
Ástralía Ítalía Pólland
Bandaríkin Japan Rúmenía
Belgía Kanada Síle
Bretland Kórea (Suður-Kórea) Slóvakía
Búlgaría Króatía Slóvenía
Danmörk Kýpur Spánn
Eistland Lettland Sviss
Finnland Liechtenstein Svíþjóð
Frakkland Litháen Tékkland
Færeyjar Lúxemborg Tyrkland
Grikkland Malta Ungverjaland
Holland Mexíkó Þýskaland
Írland Noregur
Ísland Nýja Sjáland

Auglýsing þessi, sem gefin er út skv. 158. gr., sbr. 3., 66., 137. og 140. gr., laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 135. gr., sbr. 3., 42., 111. og 114. gr., laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi auglýsing nr. 364/2009

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. september 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 24. september 2013

Tengd mál