Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Flóahreppur
Undirritunardagur
26. ágúst 2026
Útgáfudagur
9. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 967/2026
26. ágúst 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Flóahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Merkurlaut 1, L193162, Axarhólsbraut 3.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem tekur til Merkurlautar 1, L193162. Í deiliskipulaginu felst afmörkun þriggja nýrra frístundalóða úr Merkurlaut 1, þ.e. Axarhólsbraut 2, 3 og 5. Byggingarreitir eru skilgreindir innan lóðanna þar sem heimilt verður að byggja frístundahús með bílskúr, gestahús og geymslu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum
Samþykkt í sveitarstjórn 5. maí 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. ágúst 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. september 2026