Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
10. ágúst 2026
Útgáfudagur
24. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 911/2026
10. ágúst 2026
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Framfarasjóð Krabbameinsfélags Íslands.
1. gr. Heiti.
Sjóðurinn heitir Framfarasjóður Krabbameinsfélags Íslands og starfar skv. lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988, sem og reglugerð nr. 140/2008 um sama efni. Sjóðurinn stundar ekki atvinnurekstur.
2. gr. Heimili og varnarþing.
Heimili og varnarþing sjóðsins er í Reykjavík.
3. gr. Markmið.
Tilgangur sjóðsins er að bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein og efla forvarnir gegn krabbameinum. Sjóðurinn mun styrkja með fjárframlögum ný verkefni sem ætlað er að bæta þjónustu við fólk við greiningu og meðferð krabbameina og að lokinni krabbameinsmeðferð auk nýrra verkefna til forvarna gegn krabbameinum.
4. gr. Stofnandi og stofnframlag.
Stofnandi sjóðsins er Krabbameinsfélag Íslands, kt. 700169-2789, með stofnframlagi að upphæð 75.000.000 kr.
Sjóðurinn ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim verðmætum er hann kann að eignast síðar. Stofnandi hefur engin sérréttindi í sjóðnum. Stofnandi eða tengd aðildarfélög hafa ekki heimild til að sækja um styrki úr sjóðnum.
5. gr. Stjórn.
Stjórn Framfarasjóðs Krabbameinsfélags Íslands skipa þrír einstaklingar tilnefndir til þriggja ára í senn af stjórn Krabbameinsfélags Íslands og tveir til vara. Formaður skal skipaður sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum. Enginn getur setið í stjórn Framfarasjóðs lengur en sex ár í senn. Við fyrstu skipun stjórnar skulu tveir stjórnarmanna tilnefndir til þriggja ára, þar á meðal formaður, og einn til tveggja ára.
Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu á hverjum tíma uppfylla lögbundin hæfisskilyrði til setu í stjórn stofnunarinnar. Missi stjórnarmenn, framkvæmdastjóri eða skipaður fjárvörsluaðili hæfi til stjórnarsetu skulu þeir upplýsa sýslumann um það. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu skýra satt og rétt frá högum sjóðsins í opinberum auglýsingum eða tilkynningum, skýrslum, ársreikningi eða tilkynningum til sýslumanns.
Ákvarðanir stjórnar eru teknar með meirihluta atkvæða. Stjórnarmenn fá hvorki greidd laun né þóknun fyrir venjuleg stjórnarstörf.
Stjórn sjóðsins mótar stefnu hans og setur úthlutunarreglur þar sem fjallað er um umsóknir, matsferli, kynningar, skil á niðurstöðum og styrki. Jafnframt setur stjórnin sér starfsreglur. Úthlutunarreglur og starfsreglur stjórnar skulu bornar undir stjórn Krabbameinsfélags Íslands til staðfestingar.
Stjórnin ber ábyrgð á því að úthlutun styrkja sé í samræmi við skipulagsskrá þessa. Hún ber ábyrgð á ávöxtun sjóðsfjár og er heimilt að fela viðurkenndum fjárvörsluaðila umsjón með fjármunum sjóðsins. Stofnframlag og aðrar eigur sjóðsins skal ávaxta með tryggilegum hætti.
Stjórnin skal eigi síðar en 1. maí ár hvert skila stjórn Krabbameinsfélags Íslands skýrslu um störf sín á liðnu starfsári, sem birta skal opinberlega.
Stjórnin hefur aðgang að húsnæði og annarri aðstöðu á vegum Krabbameinsfélags Íslands og nýtur aðstoðar starfsmanna þess við störf sín samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjóra félagsins.
6. gr. Fundarboðun og málsmeðferð.
Boða skal stjórnarfundi með tryggilegum hætti. Enga mikilvæga ákvörðun, t.d. samþykkt úthlutunar- og starfsreglna og úthlutun styrkja, má taka fyrir hönd sjóðsins nema stjórnin sé fullskipuð, eftir atvikum með aðkomu varamanna. Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstaks máls ef það málefni sem fyrir liggur til ákvörðunar skiptir hann verulegu máli fjárhagslega eða siðferðislega. Aðalatriði þess sem fram fer á stjórnarfundum skal færa til bókar.
7. gr. Tekjur og styrktaraðilar.
Tekjur Framfarasjóðs eru styrkir frá Krabbameinsfélagi Íslands, vaxtatekjur af eignum og styrkir frá öðrum aðilum. Starfsemi styrktaraðila skal samræmast gildum og stefnu Krabbameinsfélags Íslands og viðmiðum félagsins um samskipti við styrktaraðila.
8. gr. Styrkveitingar.
Stjórn sjóðsins auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum að minnsta kosti einu sinni á ári og annast styrkveitingar úr sjóðnum að fenginni umsögn fimm manna fagráðs sem kosið er til þriggja ára af stjórn Krabbameinsfélags Íslands. Hlutverk fagráðsins er að leggja mat á gæði umsókna og vera stjórn sjóðsins til ráðgjafar við styrkveitingar samkvæmt úthlutunarreglum, sjá 5. gr.
9. gr. Varðveisla og ávöxtun eigna.
Stjórn sjóðsins skal varðveita eignir hans og leitast við að ávaxta sjóðinn á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt, þannig að hann nái að þjóna tilgangi sínum sem best. Stjórn sjóðsins skal setja sjóðnum fjárfestingarstefnu þar sem markmiðum um ávöxtun skal lýst og mörk áhættu skilgreind. Fjárfestingar skulu samræmast gildum og stefnu Krabbameinsfélags Íslands. Stjórn sjóðsins er heimilt að fela fjármálastjóra Krabbameinsfélags Íslands að semja við viðurkenndar fjármálastofnanir um ráðgjöf og eftir atvikum eignastýringu fyrir sjóðinn.
10. gr. Reikningsárið.
Reikningsárið er almanaksárið og er fyrsta reikningstímabil frá stofnun sjóðsins og til næstu áramóta.
Bókhald og fjárreiður sjóðsins skulu vera í höndum fjármálastjóra Krabbameinsfélags Íslands sem annast greiðslur úr sjóðnum samkvæmt ákvörðun stjórnar í samráði við formann stjórnar. Ársreikningur skal lagður fram á stjórnarfundi sjóðsins til samþykktar og vera fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Sjóðurinn skal kjósa endurskoðunarfyrirtæki til að yfirfara ársreikning. Ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019, gilda um hæfi og störf endurskoðunarfyrirtækja.
Senda skal sýslumanni áritaðan ársreikning fyrir næstliðið ár eigi síðar en 31. ágúst ár hvert ásamt skýrslu um hvernig fé sjóðsins hefur verið ráðstafað á því ári.
Um reikningsskil sjóðsins fer eftir því sem segir í lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
11. gr. Breyting skipulagsskrár, sameining og niðurlagning.
Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina sjóðinn öðrum sjóði eða leggja hann niður þarf samþykki stjórnar sjóðsins og stjórnar Krabbameinsfélags Íslands. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumanns til staðfestingar. Komi til niðurlagningar sjóðsins, skulu eignir hans renna til verkefna á sviði krabbameinsforvarna eða þjónustu við fólk með krabbamein.
12. gr. Staðfesting sýslumanns.
Leita skal staðfestingar sýslumanns á skipulagsskrá þessari.
Til staðfestingar á ofangreindu hafa stjórnarmenn í stjórn Krabbameinsfélags Íslands, stofnanda Framfarasjóðs, áritað skjalið með rafrænum hætti í júlí 2026.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 10. ágúst 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Martyna Julia Czubaj.
B deild — Útgáfudagur: 24. ágúst 2026