Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. júní 2025

Útgáfudagur

27. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 716/2025

12. júní 2025

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 685/2011 um Raunvísindastofnun Háskólans.

1. gr.

Í stað orðanna „15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla“ í 2. mgr. 5. gr. reglnanna koma orðin: 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

2. gr.

a-liður 2. mgr. 10. gr. reglnanna orðast svo: Akademískt starfsfólk sem ráðið er til sjálfstæðra rannsókna.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. orðast svo í heild sinni:
    Akademískt starfsfólk sem ráðið er til sjálfstæðra rannsókna við stofnunina, og annað akademískt starfsfólk við Háskóla Íslands, sem veitt er rannsóknaraðstaða á Raunvísindastofnun, nýtur akademísks rannsóknarfrelsis.
  2. Í stað orðsins „sérfræðinga“ í 4. mgr. koma orðin: akademísks starfsfólks.
  3. Á eftir orðinu „stofnunarinnar“ í 4. mgr. koma orðin: sem ráðið er til sjálfstæðra rannsókna.

4. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. og 1. og 5. mgr. 5. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, eru settar í samræmi við 27. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2025.

Háskóla Íslands, 12. júní 2025.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025

Tengd mál