Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstofnanir, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd
Undirritunardagur
13. janúar 2026
Útgáfudagur
28. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 51/2026
13. janúar 2026
GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar.
1. gr. Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 3. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur samkvæmt 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:
| a. | Fyrir sérfræðinga I | kr. 22.700 |
| b. | Fyrir sérfræðinga II | kr. 20.300 |
| c. | Fyrir sérfræðinga III | kr. 17.900 |
2. gr. Skordýra- og sveppagreiningar.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum samkvæmt 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 4.300 fyrir skordýragreiningu til almennings.
Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjaldskrárinnar.
3. gr. Útgáfa rita.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 6. gr. laga nr. 54/2024. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk.:
| a. | Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar | kr. 1.700 |
| b. | Fyrir Blika | kr. 2.000 |
4. gr. Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni samkvæmt 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 63.300.
5. gr. Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.
Náttúrufræðistofnun innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr samkvæmt 6. gr. laga nr. 54/2024.
Gjaldið skal vera kr. 8.950.
6. gr. Lagastoð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur.
Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 345/2025 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 13. janúar 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Björn Helgi Barkarson.
B deild — Útgáfudagur: 28. janúar 2026