Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

27. febrúar 2024

Útgáfudagur

28. febrúar 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 252/2024

27. febrúar 2024

AUGLÝSING

um álagningu opinberra gjalda á árinu 2024.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2024 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2024. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. febrúar 2024.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. febrúar 2024

Tengd mál