Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál

Undirritunardagur

12. maí 2026

Útgáfudagur

28. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 569/2026

12. maí 2026

REGLUGERÐ

um endurgreiðslu ríkissjóðs á kostnaði vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um endurgreiðslu ríkissjóðs á kostnaði sem fellur til vegna leiðsöguhunds þegar notandi hans, með lögheimili á Íslandi, ferðast erlendis með hundinn. Ákvæði reglugerðarinnar ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli 8. gr. a laga um Sjónstöðina, nr. 160/2008, og reglugerðar nr. 233/2010.

2. gr. Markmið.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að kostnaður sem fellur til vegna leiðsöguhunda þegar notendur þeirra ferðast erlendis, og er tilkominn vegna skilyrða sem mælt er fyrir um í reglugerðum um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020, og reglugerð um einangrun og einangrunarstöðvar fyrir gæludýr, nr. 201/2020, falli ekki á notendur sjálfa, heldur greiðist úr ríkissjóði eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

3. gr. Orðskýringar.

Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:

  1. Hjálpartæki: Tæki sem ætlað er að auka og viðhalda færni, efla þátttöku einstaklings í daglegu lífi auk þess að efla sjálfstæði og auka lífsgæði hans. Hjálpartæki verður jafnframt að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs.
  2. Leiðsöguhundur: Sérþjálfað hjálpartæki sem Sjónstöðin úthlutar einstaklingi sem, að undangengnu mati og þjálfun, getur nýtt sér það til aukins öryggis, sjálfstæðis og færni í daglegu lífi. Leiðsöguhundur aðstoðar notanda sinn við umferli og rötun, og er ætlaður til að auðvelda athafnir daglegs lífs og styðja við þátttöku notenda í samfélaginu, sbr. 8. gr. a. laga um Sjónstöðina, nr. 160/2008. Með umferli er átt við skilning einstaklings á umhverfi sínu.
  3. Notandi: Einstaklingur sem er blindur, sjónskertur eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og á rétt á þjónustu Sjónstöðvarinnar skv. lögum nr. 160/2008.

4. gr. Umsóknir og skilyrði fyrir endurgreiðslu.

Umsókn um endurgreiðslu á kostnaði sem fellur til vegna leiðsöguhunds við ferðalag notanda erlendis skal send Sjónstöðinni. Umsókn skal berast Sjónstöðinni eigi síðar en tveimur vikum fyrir brottför notanda. Samþykki stofnunarinnar um endurgreiðslu vegna ferðarinnar skal liggja fyrir áður en notandi heldur utan.

Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:

  1. Staðfesting á bókun ferðar erlendis.
  2. Staðfesting á tilskildum leyfum vegna innflutnings og einangrunar hundsins frá Matvælastofnun, samkvæmt reglugerð um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020, og reglugerð um einangrun og einangrunarstöðvar fyrir gæludýr, nr. 201/2020.
  3. Gögn um áætlaðan kostnað vegna ferðarinnar og sannanlegar greiðslukvittanir. Kvittanir skulu lagðar fram innan 90 daga frá lokum ferðar.

Sjónstöðin tekur umsóknir til meðferðar og leggur mat á hvort eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:

  1. Að notandi sé sjúkratryggður á Íslandi og hafi fengið úthlutað leiðsöguhundi frá Sjónstöðinni, sbr. 2. mgr. 8. gr. a laga nr. 160/2008 og 4. gr. reglugerðar nr. 233/2010.
  2. Að notandi sé með skráð lögheimili á Íslandi, sbr. lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
  3. Að notandi hafi aflað nauðsynlegs leyfis frá Sjónstöðinni til að ferðast erlendis með leiðsöguhundinn, í samræmi við notendaskilmála sem undirritaðir voru við úthlutun hundsins.
  4. Að fyrir liggi staðfesting Matvælastofnunar um að leiðsöguhundur uppfylli þau skilyrði sem reglugerðir nr. 200/2020 og 201/2020 kveða á um.
  5. Að notandi fari að skilyrðum um flutning lögheimilis skv. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 80/2018, með þeim undantekningum sem kveðið er á um í 9. og 11. gr. sömu laga.

Notandi ber ábyrgð á allri umsýslu sem tengist ferðum með leiðsöguhund erlendis, þar á meðal öflun allra tilskilinna leyfa og fylgiskjala, og uppfyllingu skilyrða vegna innflutnings og einangrunar hunda samkvæmt gildandi reglugerðum Matvælastofnunar.

5. gr. Endurgreiðsla ríkissjóðs.

Að uppfylltum skilyrðum í 4. gr. skal kostnaður sem fellur til vegna ferða notenda með leiðsöguhunda erlendis og aftur til Íslands greiðast af ríkissjóði í gegnum Sjónstöðina, að hámarki 600.000 kr. fyrir hverja ferð. Endurgreiðslur samkvæmt þessari grein greiðast af fjárheimildum Sjónstöðvarinnar vegna hjálpartækja. Eftirfarandi kostnaður er endurgreiddur:

  1. Heilbrigðisskoðun dýralæknis fyrir brottför frá Íslandi.
    Í heilbrigðisskoðun fyrir brottför felst kostnaður vegna sýnatöku, bólusetninga, vottorða og annarrar meðhöndlunar á dýri vegna brottfarar, samkvæmt reglugerð um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020.
  2. Útflutningsáritun Matvælastofnunar, samkvæmt reglugerð nr. 200/2020.
  3. Heilbrigðisskoðun dýralæknis erlendis fyrir komu til Íslands.
    Í heilbrigðisskoðun dýralæknis erlendis felst kostnaður vegna sýnatöku, bólusetninga, vottorða og annarrar meðhöndlunar á dýri fyrir komu til landsins, samkvæmt reglugerð nr. 200/2020.
  4. Gjöld tengd innflutningsleyfi Matvælastofnunar við komu til Íslands, samkvæmt reglugerð nr. 200/2020.
  5. Kostnaður vegna sóttvarnaráðstafana og einangrunar við komu til Íslands, þar með talið úttektir Matvælastofnunar og dýralæknisþjónusta vegna heimaeinangrunar eða dvalar í einangrunarstöð, samkvæmt reglugerð um einangrun og einangrunarstöðvar fyrir dýr, nr. 201/2020.

6. gr. Stjórnsýslukærur.

Rísi ágreiningur um ákvæði 4. gr. eða 5. gr. reglugerðar þessarar er heimilt að kæra ákvörðun Sjónstöðvarinnar til félags- og húsnæðismálaráðuneytis.

Kæra til félags- og húsnæðismálaráðuneytis skal vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að notanda var tilkynnt um ákvörðun.

Sjónstöðin skal láta félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í té öll gögn máls, svo og þær upplýsingar og skýringar er ráðuneytið telur þörf á.

7. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 7. mgr. 4. gr. laga um Sjónstöðina, nr. 160/2008, öðlast gildi við birtingu.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 12. maí 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson

félags- og húsnæðismálaráðherra.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 28. maí 2026

Tengd mál