Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Jafnréttismál

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

18. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 53/2026

11. júní 2026

LÖG

um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Í stað orðanna „jafnlaunavottunar eða jafnlaunastaðfestingar“ í d-lið 1. gr. laganna kemur: laganna um skýrslugjöf um kynbundinn launamun.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. 11. tölul. fellur brott.
  2. 12. tölul. orðast svo: Skýrslugjöf um kynbundinn launamun: Skil á gögnum um að launakerfi fyrirtækisins eða stofnunarinnar uppfylli kröfur 8. gr.

3. gr.

7. gr. laganna fellur brott.

4. gr.

8. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Skýrslugjöf um kynbundinn launamun.

Fyrirtæki eða stofnun þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli skal á þriggja ára fresti skila gögnum til Jafnréttisstofu sem sýna fram á að launakerfi þess tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir séu teknar út frá kynhlutlausum viðmiðum sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun á grundvelli kyns.

Eftirfarandi gögnum skal skilað til Jafnréttisstofu:

  1. Starfaflokkun fyrirtækis eða stofnunar út frá fyrirframákveðnum hlutlægum viðmiðum þar sem lagt er mat á þær kröfur sem störf gera til starfsfólks þannig að saman flokkist sömu eða jafnverðmæt störf. Á meðal viðmiða skulu vera ábyrgð, álag, hæfni og vinnuaðstæður og, ef við á, aðrir þættir sem skipta máli fyrir viðkomandi starf eða stöðu.
  2. Launagreining sem byggist á starfaflokkun skv. 1. tölul. og sýnir meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastar viðbótargreiðslur fyrir störf og allar aukagreiðslur eftir kynjum.
  3. Tímasett áætlun um úrbætur þegar við á.

Jafnréttisáætlun skv. 5. gr. er forsenda þess að fyrirtæki eða stofnun geti lokið skýrslugjöf um kynbundinn launamun.

Fyrirtæki eða stofnun skal kynna niðurstöður launagreiningar um kynbundinn launamun fyrir starfsfólki og gera þær aðgengilegar, eftir að þær hafa verið gerðar ópersónugreinanlegar, en að öðrum kosti að teknu tilliti til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Taka skal tillit til allra þátta launa og kjara.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal Stjórnarráð Íslands, samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands, skila gögnum skv. 1.–3. tölul. 2. mgr. á þriggja ára fresti óháð fjölda starfsfólks.

5. gr.

9. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Umsýsla Jafnréttisstofu í tengslum við skýrslugjöf um kynbundinn launamun.

Jafnréttisstofa hefur eftirlit með að fyrirtæki og stofnanir skili gögnum sem uppfylla kröfur skv. 8. gr. og að unnið sé samkvæmt úrbótaáætlun, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 8. gr., þegar við á. Jafnréttisstofa heldur skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem hafa sent tilskilin gögn og birtir hana á vef stofnunarinnar. Í skránni skulu m.a. koma fram upplýsingar um nafn fyrirtækis eða stofnunar, kennitölu og heimilisfang viðkomandi og gildistíma skýrslugjafar um kynbundinn launamun.

Þá heldur Jafnréttisstofa skrá yfir fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli sem ekki hafa sent inn tilskilin gögn skv. 8. gr.

Um umsýslu Jafnréttisstofu í tengslum við skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana fer að öðru leyti skv. II. kafla laga um stjórnsýslu jafnréttismála.

6. gr.

10. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Eftirlit Jafnréttisstofu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun.

Jafnréttisstofa annast eftirlit með því að fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli skili umbeðnum gögnum skv. 8. gr. Fyrirtæki og stofnanir skulu veita Jafnréttisstofu þær upplýsingar og gögn sem Jafnréttisstofa telur nauðsynleg til að sinna eftirliti samkvæmt ákvæði þessu að viðlögðum dagsektum skv. 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Hafi fyrirtæki eða stofnun ekki skilað gögnum skv. 8. gr. eða veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar eða gögn skv. 2. málsl. getur Jafnréttisstofa beint þeim fyrirmælum til hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar að gera viðunandi úrbætur innan hæfilegs frests að viðlögðum dagsektum skv. 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála.

Um eftirlit Jafnréttisstofu með skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana fer að öðru leyti skv. 5. og 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála.

7. gr.

11. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Mat á árangri.

Ráðherra skal láta meta framgang og árangur af skýrslugjöf um kynbundinn launamun skv. 8.–10. gr. á þriggja ára fresti með gerð rannsóknar á launamun kvenna og karla sem nái til vinnumarkaðarins í heild í samstarfi við Hagstofu Íslands.

8. gr.

33. gr. laganna orðast svo:

Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, svo sem um:

  1. Skýrslugjöf um kynbundinn launamun skv. 8. gr. og umsýslu og eftirlit Jafnréttisstofu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun skv. 9. og 10. gr., þar á meðal um:
    1. viðmið í tengslum við starfaflokkun, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 8. gr.,
    2. verklag Jafnréttisstofu við eftirlit og eftirfylgni með úrbótaáætlunum, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 8. gr., og
    3. hvernig eftirliti Jafnréttisstofu skv. 10. gr. skuli háttað,
    4. nánari framkvæmd og tilhögun mats á framgangi og árangri skýrslugjafar um kynbundinn launamun skv. 11. gr.
  2. Störf samráðsvettvangs um jafnréttismál, Jafnréttisráðs, sbr. 24. gr.

9. gr.

Ákvæði til bráðabirgða I í lögunum orðast svo:

Fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa öðlast jafnlaunavottun skulu skila gögnum skv. 8. gr. að þremur árum liðnum frá síðustu vottun vottunaraðila. Þau fyrirtæki sem öðlast hafa jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu skulu á sama hátt skila gögnum að þremur árum liðnum frá síðustu jafnlaunastaðfestingu. Aðilar sem hvorki hafa öðlast jafnlaunavottun né jafnlaunastaðfestingu frá Jafnréttisstofu en falla undir lögin skulu skila gögnum skv. 8. gr. fyrir 1. mars 2027.

10. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. september 2026.

11. gr.

Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020: K-liður 4. gr. laganna orðast svo: hafa umsjón með umsýslu skýrslugjafar um kynbundinn launamun, sbr. 8. og 9. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, og annast eftirlit skv. 10. gr. sömu laga.

Gjört í Reykjavík, 11. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

A deild — Útgáfudagur: 18. júní 2026

Tengd mál