Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Árborg
Málaflokkur
Vatnamál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
9. júlí 2026
Útgáfudagur
27. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 861/2026
9. júlí 2026
GJALDSKRÁ
vatnsveitu í Sveitarfélaginu Árborg.
1. gr. Gjaldskylda.
Sveitarfélagið Árborg innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. gr. laganna.
2. gr. Ráðstöfun gjalda.
Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða.
Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t. fjármagnskostnaði, og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.
3. gr. Heimæðargjald vatnsveitu.
Heimæðargjald vatnsveitu fylgir byggingarvísitölu og er uppfært tvisvar á ári í janúar og júlí ár hvert.
| Þvermál heimæðar | Uppfært miðað við | |
| PE - mm | byggingarvísitölu (júní 2026 - 206,0 stig) | |
| 32 | 401.898 kr. | |
| 40 | 435.044 kr. | |
| 50 | 490.288 kr. | |
| 63 | 620.110 kr. | |
| 75 | 791.366 kr. | |
| 90 | 1.048.249 kr. |
Gjöldin miðast við að ídráttarrör fyrir heimlagnir hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitu Sveitarfélagsins Árborgar við lóðarmörk, að tengistað (inntaksstað) mannvirkis, og skulu vera í samræmi við leiðbeiningar fyrir ídráttarrör sem fylgja í umsóknarferli.
Innifalið í heimæðargjaldi er allt að 30 metra lögn og tengigrind. Ef heimtaug er lengri en 30 metrar bætist við 2% yfirlengdargjald á hvern metra. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi stærðar. Heimæðargjald fyrir inntök stærri en 90 mm er reiknað út hjá vatnsveitu Sveitarfélagsins Árborgar.
Geri húseigandi eða lóðarhafi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélagsins ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna, inntaksbúnaðar og á inntaksstað. Sama gildir um tímabundna aftengingu. Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála vatnsveitu og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður, sbr. 10. gr.
4. gr. Bráðabirgðatengingar vatnsveitu.
Vinnuskúravatn og bráðabirgðatenging í húsnæði á byggingarstigi B1.
Byggingin þarf að vera komin á byggingarstig B1 til að hægt sé að sækja um bráðabirgðavatn. Vinnuskúra- og bráðabirgðatenging gildir í 12 mánuði frá tengingu. Sé húsnæði ekki komið á byggingarstig B2 að þeim tíma liðnum þarf að endurnýja umsókn og greiða 20% af bráðabirgðagjaldi viðkomandi stærðar aftur. Hægt er að endurnýja tvisvar.
| Þvermál heimæðar | Uppfært miðað við | |
| PE - mm | byggingarvísitölu (júní 2026 - 205,7 stig) | |
| Vinnuskúravatn | 120.569 kr. | |
| 32 | 120.569 kr. | |
| 40 | 130.513 kr. | |
| 50 | 147.086 kr. | |
| 63 | 186.033 kr. | |
| 75 | 237.410 kr. | |
| 90 | 314.475 kr. |
Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað. Innheimt er mánaðargjald fyrir notkun á bráðabirgðatengingum.
Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála vatnsveitu og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður, sbr. 10. gr.
5. gr. Aukagjöld vegna sérstakra aðstæðna.
Við sérstakar aðstæður, s.s. vegna frosts í jörðu skal greitt sérstakt álag er nemur 25% sem leggst ofan á heimæðargjald skv. 3. gr. Fyrir fleygun/fræsingu á klöpp skal greitt eftir raunkostnaði.
Þurfi að koma til dælingar vegna vatnsaga við lagningu heimæða, skal lóðarhafi greiða eftirfarandi:
| Vatnsdæla | 2.575 kr./sólarhring | |
| Rafstöð fyrir dælu | 3.511 kr./sólarhring |
Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála vatnsveitu og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður:
| Aðstaða ekki fullnægjandi | 22.162 kr. |
6. gr. Vatnsgjald.
Árlega skal greiða vatnsgjald af öllum fasteignum í sveitarfélaginu sem vatns geta notið.
Vatnsgjald er sett á þegar bygging er komin á byggingarstig B2 og heimtaug tengd.
Álagningarstofn gjaldsins skal vera fasteignamat viðkomandi fasteigna. Fjárhæð gjaldsins skal nema:
0,085% af heildarfasteignamati eignar í A-flokki.
0,162% af heildarfasteignamati eignar í B-flokki.
0,162% af heildarfasteignamati eignar í C-flokki.
7. gr. Notkunargjald.
Þar sem vatn frá vatnsveitu er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisþarfa skal innheimt sérstakt notkunargjald.
Fjárhæð notkunargjalds er 48,62 kr. á rúmmetra (m³) vatns, skv. mælingu.
Notkunargjaldið tekur mið af vísitölu byggingarkostnaðar í janúar hvert ár.
Gjaldið skal uppfært miðað við vísitöluhækkanir tvisvar á ári í janúar og júlí.
Í þeim tilvikum þegar um óvenjumikil kaup á vatni er að ræða eða vatn er keypt til sérstakrar framleiðslu er heimilt að gera sérstakt samkomulag við kaupanda um endurgjald fyrir vatnið.
Sé óskað eftir bráðabirgðatengingu greiðast 11.081 kr. á mánuði í notkunargjald fyrir hana á meðan bráðbirgðatenging er notuð.
8. gr. Mælaleiga.
Þeim sem greiða skulu notkunargjald skv. 7. gr. skulu látnir í té vatnsmælar. Notandi skal sjá fyrir aðstöðu fyrir mæli. Vatnsveita er eigandi mælanna og skal greidd fyrir þá ársleiga sem hér segir:
| Stærð mælis | Mælaleiga á ári (júní 2026 - 205,7 stig) | |
| að 20 mm | 8.116 kr. | |
| 20 - 24 mm | 10.816 kr. | |
| 25 - 31 mm | 13.525 kr. | |
| 32 - 39 mm | 16.227 kr. | |
| 40 - 49 mm | 21.640 kr. | |
| 50 - 74 mm | 64.915 kr. | |
| 75 - 99 mm | 70.323 kr. | |
| 100 mm og stærri | 75.731 kr. |
Mælaleigan tekur mið af vísitölu byggingarkostnaðar og er uppfærð tvisvar á ári í janúar og júlí.
9. gr. Gjalddagar.
- Heimæðargjald: Gjalddagi heimæðargjalds vatnsveitu miðast við tengingu heimæðar.
Gjöldin skulu greidd eða um þau samið innan 20 daga frá gjalddaga. - Vatnsgjald: Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
- Notkunargjald: Gjalddagar notkunargjalds eru á þriggja mánaða fresti.
Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga. - Mælaleiga: Gjalddagar leigugjalds fyrir mæli er á þriggja mánaða fresti.
Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga. - Bráðabirgðagjald: Gjalddagar notkunar á bráðabirgðamæli eru mánaðarlega.
Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
10. gr. Innheimta o.fl.
Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds en notandi, ef hann er annar en fasteignareigandi, ber ábyrgð á greiðslu notkunargjalds.
Gjöldin njóta lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum í næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim sem vanrækja að greiða notkunargjald að undangenginni skriflegri aðvörun.
Notkunargjald og leigugjald fyrir mæli, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum er heimilt að taka fjárnámi.
| Innheimtugjald1 | 2.066 kr. | |
| Nýr mælir2 | 31.296 kr. | |
| Lokunargjald/opnunargjald3 | 13.695 kr. | |
| Opnunargjald utan dagvinnutíma | 27.031 kr. | |
| Aðstaða ekki fullnægjandi/endurkomugjald4 | 22.162 kr. | |
| Breyting/færsla á inntaki, lágmarksgjald5 | 111.833 kr. | |
| Lokunargjald ef grafa þarf niður að heimæð6 | 436.783 kr. | |
| 1 Innheimtugjald er lagt á þá sem fá send lokunarbréf í pósthólf sitt á island.is vegna vanskila notkunargjalda. | ||
| 2 Gjald ef mælir hefur orðið fyrir skemmdum og setja þarf upp nýjan. Verð miðast við 15 mm mæli. | ||
| 3 Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim sem vanrækja að greiða notkunargjald að undangenginni skriflegri aðvörun. | ||
| 4 Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála vatnsveitna frá 2010 og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður. | ||
| 5 Gjaldfært í samræmi við raunkostnað en að lágmarki 111.833 kr. Ef tjón verður á heimtaug vegna gáleysis lóðarhafa skal einnig miðast við þetta gjald. | ||
| 6 Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð. | ||
11. gr. Gildistaka
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samin og samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar með heimild í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga, 11. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 og III. kafla vatnalaga nr. 15/1923.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá vatnsveitu í Sveitarfélaginu Árborg nr. 1690/2025.
Samþykkt í bæjarráði Sveitarfélagsins Árborgar sem fer með sömu heimildir og bæjarstjórn í sumarleyfi bæjarstjórnar, 9. júlí 2026.
Samþykkt í bæjarráði Sveitarfélagsins Árborgar, 9. júlí 2026.
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 27. júlí 2026