Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

30. september 2021

Útgáfudagur

4. október 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1113/2021

30. september 2021

REGLUR

um staðalfrávik í tengslum við sveiflujöfnun vegna heilsutrygginga.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

2. gr. Samræmdar útreikningsforsendur staðalreglunnar.

Aðilar sem falla undir gildissvið reglnanna skulu við útreikning gjaldþolskröfu heilsutryggingaráhættu skv. 100. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, fylgja ákvæðum reglugerðar (ESB) 2015/2013 frá 11. nóvember 2015, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2013 frá 11. nóvember 2015, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðalfrávik í tengslum við sveiflujöfnun vegna heilsutrygginga í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 24-25.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 4. tölul. 2. mgr. 101. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 30. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 4. október 2021

Tengd mál