Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar, Samkeppnismál

Undirritunardagur

30. apríl 2026

Útgáfudagur

30. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 34/2026

30. apríl 2026

LÖG

um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis).

Handhafar valds forseta Íslands
  samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

I. KAFLIBreyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.

1. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 14. gr. skal virðisaukaskattur vera 11% við innflutning og skattskylda sölu á eldsneyti sem fellur undir tollskrárnúmer 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021, 2710.2029, 2710.2065 og 3826.0000 á tímabilinu frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026.

Á tímabilinu frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026 er söluaðila eldsneytis skylt að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skv. 1. mgr. skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Samkeppniseftirlitið skal hafa sérstakt eftirlit með tímabundinni lækkun á útsöluverði eldsneytis samkvæmt þessu ákvæði.

II. KAFLIBreyting á samkeppnislögum, nr. 44/2005.

2. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Við framkvæmd eftirlits með tímabundinni lækkun á útsöluverði eldsneytis á tímabilinu frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026, sbr. ákvæði til bráðabirgða XLIX í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, skulu ákvæði laga þessara gilda um málsmeðferð og valdheimildir Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem gerast brotleg gegn skyldu til að tryggja að hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis skv. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XLIX í lögum um virðisaukaskatt, sbr. 37. gr. laga þessara.

Samkeppniseftirlitið skal gera ráðherra grein fyrir því telji það misbrest á að tímabundin lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Ráðherra getur, að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að höfðu samráði við ráðherra skattamála, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við slíkum misbresti. Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum. Aðgerðir geta eigi staðið lengur en til og með 31. ágúst 2026.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 30. apríl 2026.

Kristrún Frostadóttir.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.

(L. S.)

Sigurður Tómas Magnússon.

Daði Már Kristófersson.

A deild — Útgáfudagur: 30. apríl 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi