Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
9. september 2025
Útgáfudagur
23. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1011/2025
9. september 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.
1. gr.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1108 frá 13. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar fyrsta lofthæfi ómannaðra loftfarskerfa sem eru háð vottun og á framseldri reglugerð (ESB) 2019/945 að því er varðar ómönnuð loftfarskerfi og umráðendur ómannaðra loftfarskerfa frá þriðja landi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 31.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1110 frá 10. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar fyrsta lofthæfi ómannaðra loftfarskerfa sem eru háð vottun og á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar reglur og verklagsreglur fyrir starfrækslu ómannaðra loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 282-288.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 54. gr. og 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 9. september 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 23. september 2025