Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Atvinnuréttindi, Siglingar - skip

Undirritunardagur

30. janúar 2026

Útgáfudagur

13. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 144/2026

30. janúar 2026

REGLUGERÐ

um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að mæla fyrir um skilyrði þess að fá útgefið skipstjórnar- og vélstjórnarskírteini til starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar til samræmis við ákvæði laga um áhafnir skipa nr. 82/2022.

Menntun áhafna björgunarskipa skal vera í samræmi við samræmd viðmið um menntun og þjálfun áhafna björgunarskipa útgefnar af Alþjóðasjóbjörgunarsamtökunum (e. The International Maritime Rescue Federation).

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um áhafnir björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem eru 18 metrar og styttri að skráningarlengd og með vélarafl allt að 1350 kW, og eru að staðaldri í íslenskri efnahagslögsögu.

3. gr. Skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum.

Rétt til að starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa þeir sem fullnægja ákvæðum reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum nr. 944/2020.

Þeir sem ekki uppfylla ákvæði reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum öðlast þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. rétt til að starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar enda uppfylli þeir ákvæði reglugerðar þessarar.

Þeir sem gegna stöðu skipstjórnar- og vélstjórnarmanna skulu geta framvísað gildum réttindaskírteinum útgefnum af Samgöngustofu til staðfestingar á hæfni þeirra til að gegna þeim stöðum.

4. gr. Skipstjóri björgunarskipa.

Hver sá sem stjórnar björgunarskipi skal:

  1. hafa lokið smáskipanámi samkvæmt reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, eða sambærilegu,
  2. hafa lokið viðurkenndu skipstjórnarnámskeiði fyrir stjórnendur björgunarskipa, skipulögðu af Slysavarnafélaginu Landsbjörg eða Slysavarnaskóla sjómanna,
  3. hafa lokið viðurkenndu áhafnanámskeiði björgunarskipa skipulögðu af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  4. hafa lokið viðurkenndu stjórnendanámskeiði björgunarskipa skipulögðu af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  5. hafa verið í áhöfn björgunarskips í a.m.k. 24 mánuði, eða hafa a.m.k. 12 mánaða siglingatíma og
  6. hafa farið a.m.k. 36 ferðir á björgunarskipum 6 metrum að lengd eða lengri, þar af 10 ferðir í sértækri þjálfun sem skipstjórnarmaður í umsjón starfandi skipstjóra í viðkomandi ferð, eða hafa starfað sem skipstjórnarmaður í atvinnuskyni.

5. gr. Vélstjóri björgunarskipa.

Hver sá sem annast vélstjórn björgunarskips skal:

  1. Hafa lokið smáskipavélavarðarnámi samkvæmt reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, eða sambærilegu,
  2. hafa lokið viðurkenndu námi í vélstjórn björgunarskipa, skipulögðu af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Slysavarnaskóla sjómanna,
  3. hafa lokið viðurkenndu áhafnanámskeiði björgunarskipa skipulögðu af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og
  4. hafa farið a.m.k. 24 ferðir á björgunarskipum 6 metrum að lengd eða lengri, þar af 10 ferðir í sértækri þjálfun sem vélstjórnarmaður í umsjón starfandi vélstjóra í viðkomandi ferð.

Hjá björgunarbátasjóði skal a.m.k. vera einn vélstjórnarmenntaður einstaklingur sem hefur a.m.k. VSI-réttindi sem annast reglubundið eftirlit með vélbúnaði björgunarskips ef réttindaminni vélstjórnarmenn skipa áhöfn þess, nema sjóðurinn sé með gildan viðhaldssamning við viðurkennda vélsmiðju eða annan þann aðila sem réttindi hefur til að sinna viðhaldi skips, enda takmarkist farsvið björgunarskipsins við strandsiglingar, eins og þær eru skilgreindar í lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022.

6. gr. Skírteini og þjálfunarbók.

Um útgáfu skírteina, gildistíma og endurnýjun skírteina fer eftir ákvæðum 4. og 7. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022 og ákvæðum reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum.

Slysavarnafélagið Landsbjörg gefur út þjálfunarbók fyrir sérhvern skipverja björgunarskips. Í sjóferðabók skal færa inn sjóferðir viðkomandi skipverja á björgunarskipi, störf viðkomandi í hverri ferð og eðli ferðar. Skipverji færir sönnur um starfstíma sinn í áhöfn björgunarskips með rétt útfylltri þjálfunarbók.

7. gr. Refsiákvæði.

Um brot á reglugerð þessari fer eftir ákvæðum 34. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 37. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum, nr. 555/2008.

Innviðaráðuneytinu, 30. janúar 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 13. febrúar 2026

Tengd mál