Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mosfellsbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Mosfellsbær

Undirritunardagur

11. maí 2026

Útgáfudagur

13. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 482/2026

11. maí 2026

AUGLÝSING

um samþykkt skipulagsmál í Mosfellsbæ.

Auglýsingamastur við Baugshlíð, deiliskipulagsbreyting – S123.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að heimilt verði að koma fyrir auglýsingamastri með tvo rafræna LED-skjái við Baugshlíð.

Bjargslundur 8A, deiliskipulagsbreyting – Íb317.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með breytingunni er skilgreindur nýr byggingarreitur fyrir íveruhús á lóðinni í samræmi við skilgreiningar Mosfellsbæjar á viðbættum mannvirkjum á sérbýlishúsalóðum.

Fossatunga 35-37, deiliskipulagsbreyting – Íb104.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér breytta staðsetningu og stærð byggingarreita fyrir bílskúra, nýjan byggingarreit fyrir tengibyggingu við íbúðarhús, ásamt lóðafrágangi.

Hamrar hjúkrunarheimili, deiliskipulagsbreyting – M116.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur fyrst og fremst í sér að setja upplýsingar um byggingarheimildir og fjölda hjúkrunarrýma fram í töflu með skýrari hætti en gert er í gildandi deiliskipulagi. Uppfærðar eru raunstærðir lóða samkvæmt samþykktu mæliblaði, einnig er innfærð uppskipting lands L124722, í lóðirnar Hlaðhamra 2 og Langatanga 2A. Annað í skipulagi er óbreytt.

Krókavegur 19, nýtt deiliskipulag – F517.

Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulaginu eru skilgreindar þrjár frístundalóðir með byggingarheimildir í samræmi við ákvæði aðalskipulags Mosfellsbæjar.

Tjarnavegur 57, nýtt deiliskipulag – F513.

Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulaginu er skilgreind ein frístundalóð með byggingarheimildir í samræmi við ákvæði gildandi aðalskipulags.

Blikastaðaland, 1. áfangi, nýtt deiliskipulag – Íb124.

Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið felur í sér íbúðarbyggð á 34,8 ha skipulagsreit, með blandaða og vistvæna íbúðarbyggð og fyrirhugaða Borgarlínuleið. Gert er ráð fyrir allt að 1.260 íbúðum í fjölbýli og sérbýli, auk þjónustu-, grunn- og leikskólahúsnæðis.

Ofangreindar skipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Mosfellsbæ, 11. maí 2026.

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 13. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi