Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælastofnun
Málaflokkur
Neytendavernd, Afurðarheiti
Undirritunardagur
20. febrúar 2020
Útgáfudagur
5. mars 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 184/2020
20. febrúar 2020
AUGLÝSING
frá Matvælastofnun um vernd afurðarheitisins „íslensk lopapeysa“ með vísan til uppruna.
Matvælastofnun hefur fallist á umsókn Handprjónasambands Íslands um að afurðarheitið „Íslensk lopapeysa / Icelandic Lopapeysa“ verði skráð sem verndað afurðarheitimeð vísan til uppruna. Skráningin byggist á lögum nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
Auglýsing þessi um ákvörðun um skráningu afurðarheitis er birt í samræmi við 2. mgr. 16. gr. laga nr. 130/2014. Einnig er afurðarlýsingin birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, sbr. 14. gr. sömu laga.
Selfossi, 20. febrúar 2020.
F.h. Matvælastofnunar,
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 5. mars 2020