Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Skagafjörður
Undirritunardagur
20. október 2025
Útgáfudagur
4. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1134/2025
20. október 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Gýgjarhóls, Gýgjarhóls 1 og Gýgjarhóls 2.
Skipulagsstofnun staðfesti 20. október 2025 breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.
Í breytingunni felst að skilgreind eru þrjú ný verslunar- og þjónustusvæði (VÞ-14, VÞ-15 og VÞ-16) í landi Gýgjarhóls og Gýgjarhóls 1 og 2, þar sem fyrirhuguð er uppbygging gistingar, þjónustu og íbúða, samtals 1.500 m² á hverju svæði. Auk þess er skilgreint nýtt 32,6 ha skógræktarsvæði (SL-8) í landi Gýgjarhóls og Gýgjarhóls 1.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 20. október 2025.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 4. nóvember 2025