Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Hornafjörður
Málaflokkur
Gæludýr, Sveitarfélagið Hornafjörður
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
24. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 396/2026
8. apríl 2026
GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Hornafirði.
1. gr.
Eigendur katta í Sveitarfélaginu Hornafirði skulu greiða gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis, nr. 912/2015.
2. gr.
Árlegt leyfisgjald er 6.600 kr.
Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitarfélagsins.
3. gr.
Handsömunargjald katta skal vera skv. 11. gr. samþykktar nr. 912/2015. Við afhendingu handsamaðs kattar skal greiða 8.800 kr. Þurfi að vista kött yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð 7.150 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhring.
Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan útlagðan aflífunarkostnað.
4. gr.
Gjalddagi skv. 3. gr. er 31. janúar og eindagi er 28. febrúar ár hvert, og greiðslan gildir fyrir það almanaksár sem hún er innt af hendi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd fyrir eindaga. Innheimta gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Eigandi kattar getur sótt um 50% afslátt af árlegu kattaleyfisgjaldi gegn staðfestingu þess að kötturinn hafi farið í ófrjósemisaðgerð. Afslátturinn gildir meðan skráning kattarins er í gildi í sveitarfélaginu.
Við afskráningu á ketti skal endurgreiða árlegt leyfisgjald í hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu. Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan áfallinn kostnað.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með vísun til heimilda í samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis, nr. 912/2015, og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 11. desember 2025.
Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur gjaldskrá sama efnis, nr. 679/2017, úr gildi.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 8. apríl 2026.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 24. apríl 2026