Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Gististaðir, Veitingastaðir
Undirritunardagur
26. mars 2026
Útgáfudagur
8. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 25/2026
26. mars 2026
LÖG
um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:
- Í stað orðsins „Rekstrarleyfisskyld“ í 2. málsl. kemur: Ótímabundin, rekstrarleyfisskyld.
- Í stað orðanna „sem hann hefur til persónulegra nota og er í hans eigu“ í 3. málsl. kemur: í hans eigu utan þéttbýlis.
- Í stað orðsins „eða“ í 4. málsl. kemur: og.
2. gr.
Við 1. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna bætist: að undanskildu rekstrarleyfi til gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis sem skal vera tímabundið til fimm ára í senn.
3. gr.
Í stað orðanna „það hafi hlotið samþykki sem íbúðarhúsnæði og að húsnæðið“ í 2. málsl. 1. mgr. 13. gr. laganna kemur: að húsnæðið hafi hlotið samþykki fyrir notkun samkvæmt reglugerð og.
4. gr.
Á eftir 2. málsl. 2. mgr. 21. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Sýslumaður getur óskað eftir upplýsingum hjá ríkisskattstjóra sem kunna að skipta máli vegna eftirlits með skráningarskyldri heimagistingu og stjórnvaldssektarheimildar sýslumanns vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi í einstökum málum, m.a. upplýsingum sem skilað er samkvæmt lögum um virðisaukaskatt og lögum um tekjuskatt. Ríkisskattstjóra er heimilt að veita þær upplýsingar, þ.m.t. upplýsingar úr skattframtölum einstaklinga, sem fyrirliggjandi eru hverju sinni og standa í beinum tengslum við eftirlit sýslumanns samkvæmt lögum þessum og stjórnvaldssektarheimild sýslumanns vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi.
5. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Öll rekstrarleyfi til starfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis sem eru í gildi 1. apríl 2026 skulu gilda til 1. janúar 2032, enda komi ekki til niðurfellingar, afturköllunar eða sviptingar. Fyrir þann tíma skal sækja um nýtt rekstrarleyfi á grundvelli laganna sé ætlunin að halda áfram rekstri.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 26. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Hanna Katrín Friðriksson.
A deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026