Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Múlaþing

Málaflokkur

Félagsmál, Múlaþing

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

2. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1577/2025

16. desember 2025

REGLUR

um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks hjá Múlaþingi.

I. KAFLIAlmenn atriði.

1. gr. Lagagrundvöllur.

Samkvæmt 25. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:

Styrk til 18 ára og eldri vegna verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.

Styrk til 16 ára og eldri vegna greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

2. gr. Markmið.

Markmið styrkjanna er að auðvelda fötluðu fólki að verða sér úti um þekkingu og reynslu og til að auka möguleika sína til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Í þeim tilgangi eru veittir styrkir til þess að fatlað fólk geti:

sótt sér menntun

viðhaldið og aukið þekkingu og færni

nýtt möguleika á aukinni þátttöku í félagslífi og atvinnu.

3. gr. Markhópur.

Rétt til styrks samkvæmt reglum þessum á hver sá einstaklingur sem býr við andlega eða líkamlega fötlun, samanber 25. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, og þarf sérstakan stuðning af þeirri ástæðu til hæfingar, endurhæfingar, eða starfsendurhæfingar.1

Styrkir eru ekki veittir í stað starfsendurhæfingarúrræða samkvæmt lögum eða reglum sem gilda á vinnumarkaði né í stað endurhæfingarúrræða sem heilbrigðisþjónustan ber ábyrgð á að veita.
_____________
1 Hæfing hefur það að markmiði að viðhalda og auka færni viðkomandi þannig að afleiðingar fötlunar eða áfalla leiði ekki til versnandi lífsgæða. Með félagslegri hæfingu er átt við að úrræðið sé einkum ætlað að auka og viðhalda færni viðkomandi til almennrar samfélagslegrar þátttöku. Endurhæfingu er ætlað að stuðla að því að einstaklingur nái aftur eins góðri andlegri, félagslegri og líkamlegri færni og mögulegt er. Starfsendurhæfingu er einkum ætlað að endurhæfa einstaklinga til vinnu eða náms.

4. gr. Mat á þörf og skilyrði fyrir greiðslu styrkja.

Styrkir vegna verkfæra- og tækjakaupa eru til að auðvelda fólki að skapa sér atvinnu með heimavinnu eða sjálfstæðri starfsemi. Styrkir vegna náms eru veittir vegna námsgagna og námskeiðs- og skólagjalda.

Aðstoðin skal vera einstaklingsbundin og óheimilt er að styrkur renni til fyrirtækis.

Þörf fyrir styrki er metin hverju sinni út frá fötlun einstaklingsins og aðstæðum hans í heild. Við matið er horft til gagnsemi náms og/eða tækja fyrir umsækjanda, sem og gildi þess sem félagslegrar hæfingar, endurhæfingar eða starfsendurhæfingar.

Styrkir til náms ganga að öllu jöfnu fyrir styrkjum til verkfæra- og tækjakaupa.

Veita má árlega styrki til náms ef sýnt er fram á gildi námsins fyrir viðkomandi einstakling, góða námsástundun og áætluð námslok.

Við úthlutun á styrk til skóla- eða námskeiðsgjalda skal miða við tiltekinn tíma, svo sem námskeið eða skólaár.

Styrkur til verkfæra- og tækjakaupa er að öllu jöfnu ekki veittur til sama einstaklings oftar en á tveggja ára fresti.

Skilyrði er að umsækjandi eigi lögheimili í Múlaþingi og sé með 75% örorku.

5. gr. Auglýsingar.

Félagsþjónusta Múlaþings vekur athygli á rétti fólks til umsókna um nám, verkfæra- eða tækjakaup með því að auglýsa eftir umsóknum einu sinni á ári á vef Múlaþings. Umsóknarfrestur er tvær vikur frá birtingu auglýsingar. Félagsþjónusta annast afgreiðslu styrkjanna og afgreiðir umsóknir innan fjögurra vikna að loknum umsóknarfresti. Við meðferð og vinnslu umsókna ber að gæta jafnræðis umsækjenda, sýna þeim fyllstu virðingu og gæta trúnaðar um málefni þeirra.

6. gr. Styrkupphæðir.

Styrkupphæðir ákvarðast af fjárhagsáætlun hverju sinni og taka mið af fjölda umsókna. Úthlutun styrkja fer fram einu sinni á ári, að jafnaði getur samþykktur styrkur til umsækjanda verið að hámarki 50.000 kr. í hverri úthlutun.

Styrkur skal greiddur samkvæmt framlagðri staðfestingu eða kvittun fyrir greiðslu á námi og/eða tækjum, innan fjárhagsársins.

II. KAFLLIUmsóknir.

7. gr. Umsókn og fylgigögn.

Sótt skal um styrki vegna náms, verkfæra- og tækjakaupa rafrænt á mínum síðum hjá Múlaþingi á tilteknum eyðublöðum á skrifstofum sveitarfélagsins.

Við afgreiðslu umsóknar getur félagsþjónustan óskað eftir eftirfarandi gögnum:

Gögn vegna námskostnaðar:

  1. Örorkuskírteini eða vottorð frá fagaðila sem staðfestir fötlun.
  2. Greinargerð þar sem fram kemur gagnsemi styrkveitingar til umsækjanda til að auka virkni og möguleika til atvinnuþátttöku.
  3. Námsvottorð. Staðfesting frá skóla um skráningu í nám.
  4. Kvittun fyrir námskeiðs- eða skólagjöldum.

Gögn vegna verkfæra- og tækjakaupa:

  1. Örorkuskírteini eða vottorð frá fagaðila sem staðfestir fötlun.
  2. Greinargóð kostnaðaráætlun, tilboð frá söluaðila eða kvittun fyrir útlögðum kostnaði.
  3. Umsögn fagaðila.

8. gr. Afgreiðsla.

Umsóknir eru afgreiddar á meðferðarfundi félagsþjónustu Múlaþings.

Allir umsækjendur fá skriflegt svar um afgreiðslu umsóknar inn á þjónustugátt Múlaþings eða á island.is.

Ef styrkur er samþykktur er tilskilin upphæð lögð inn á bankareikning viðkomandi umsækjanda samkvæmt framlagðri staðfestingu eða kvittun fyrir greiðslu á námi og/eða tækjum.

Í svarbréfi til styrkþega skulu koma fram leiðbeiningar um hvar á að færa styrkupphæð á skattframtali.

Sé umsókn synjað skal synjun vera rökstudd í svarbréfi og fram skulu koma upplýsingar um áfrýjunarrétt.

III. KAFLIMálsmeðferð.

9. gr. Málsmeðferð.

Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og ákvæðum XVI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

10. gr. Samvinna við umsækjanda.

Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsókna og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti umboðsmann hans.

11. gr. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.

Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans skv. stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

12. gr. Leiðbeiningar til umsækjanda.

Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður veita umsækjanda alla þá aðstoð sem hann þarf og leiðbeina um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflega erindi sem ekki snertir félagsþjónustu, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er.

13. gr. Rangar eða villandi upplýsingar.

Styrkir sem veittir eru umsækjanda á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær eru alla jafna endurkræfir og getur félagsþjónusta Múlaþings endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu málsins að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast meðferð umsóknarinnar og kemur hún þá ekki til afgreiðslu.

14. gr. Áfrýjun.

Telji umsækjandi á rétt sinn hallað skv. reglum þessum getur umsækjandi áfrýjað til fjölskylduráðs innan fjögurra vikna frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Fjölskylduráð skal fjalla um umsóknina og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.

15. gr. Málskotsréttur.

Umsækjandi getur skotið ákvörðun fjölskylduráðs til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun fjölskylduráðs.

16. gr. Gildistaka.

Reglur þessar sem settar eru á grundvelli 25. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfi, nr. 38/2018, taka þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 101/2022 um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks hjá Múlaþingi.

Samþykkt af sveitarstjórn Múlaþings 15. desember 2025.

Múlaþingi, 16. desember 2025.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 2. janúar 2026

Tengd mál