Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Hornafjörður

Málaflokkur

Sorphreinsun, Sveitarfélagið Hornafjörður

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

2. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1573/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr. Almennt.

Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld vegna meðferðar úrgangs í sveitarfélaginu í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði, nr. 236/2018.

2. gr. Íbúðarhúsnæði.

Sorpgjald samkvæmt þessari grein er samanburður af föstu gjaldi og breytilegu gjaldi. Breytilegt gjald er lagt á í samræmi við fjölda og tegund sorptunna sem húseigandi sótti um.

Sorpgjöld á heimili – fast gjald Árgjald
  Rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annar fastur kostnaður 19.084 kr.
Sorpgjöld á heimili – breytilegt gjald Árgjald
  Blandaður úrgangur  
    140 l ílát 16.940 kr.
    240 l ílát 29.040 kr.
    660 l ílát 127.776 kr.
    1.100 l ílát 212.960 kr.
  Lífúrgangur  
    35 l ílát 4.840 kr.
    140 l ílát 9.680 kr.
    240 l ílát 23.232 kr.
  Pappír  
    140 l ílát 6.050 kr.
    2400 l ílát 7.260 kr.
    660 l ílát 9.680 kr.
    1.100 l ílát 29.040 kr.
  Plast  
    140 l ílát 8.470 kr.
    2400 l ílát 14.520 kr.
    660 l ílát 39.930 kr.
    1.100 l ílát 66.550 kr.
Önnur gjöld Gjald
  Breytingakostnaður við ílát 4.235 kr.

Ofangreind gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteignagjalda.

3. gr. Atvinnuhúsnæði.

Í samræmi við 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, er fast gjald, 44.275 kr., lagt á fyrirtækjalóðir í Sveitarfélaginu Hornafirði til að standa straum af kostnaði við þjónustu á söfnunarstað og urðunarstað. Gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteignagjalda.

4. gr. Móttökugjöld á söfnunarstöð.

Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir rúmmáli (kr./m³) og úrgangstegund. Stórir farmar, sem almennt fara yfir 500 kg að þyngd og koma með vögnum, hestakerrum eða stærri ökutækjum, skulu vigtast á hafnarvoginni.

Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) og úrgangstegund. Úrgangur skal vigtaður á brettavog í söfnunarstöðinni ef farmur er minni en 50 kg á hverja úrgangstegund eða á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar ef farmur er yfir 50 kg á hverja úrgangstegund.

Starfsmaður söfnunarstöðvar metur í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskrá, að fenginni lýsingu úrgangshafa og með hliðsjón af því sem komið er með á söfnunarstöðina.

Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald. Gjöld samkvæmt þessari grein eru ákvörðuð í gjaldskrá fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.

5. gr. Sumar- og frístundahús.

Í sumarhúsahverfum, þar sem sumarhús eru 20 eða fleiri, skal einnig leggja sorpeyðingargjöld á hvert sumar- eða frístundahús árlega enda verða sett upp sorpílát í nánd við sumarhúsahverfið yfir mesta ferðamannatímann frá 15. maí – 15. september.

Sorphirðugjald 10.923 kr.
Sorpeyðingargjald 11.132 kr.

Ofangreind gjöld skulu innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi hinn sami og fasteignagjalda.

6. gr. Eyðing dýraleifa.

Á búfjáreigendur er lagt sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við förgun dýraleifa og tekur gjaldið mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.

Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjáreftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:

Nautgripir 798 kr./grip Sauðfé og geitfé 228 kr./grip
Hross 638 kr./grip Svín 455 kr./grip
Alifuglar 4 kr./fugl Loðdýr 4 kr./dýr

7. gr. Aðfararheimild.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjaldaga, sbr. 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

8. gr. Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1726/2024.

Samþykkt í bæjarstjórn 11. desember 2025.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 16. desember 2025.

Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 2. janúar 2026

Tengd mál