Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

15. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1363/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

Hitaveitu Fjarðabyggðar.

1. gr.

Hitaveita Fjarðabyggðar selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá þessari og reglugerð hitaveitunnar fyrir heitt vatn nr. 908/2005. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru gefin upp án skatts á smásöluverð á heitu vatni og virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram, og leggjast þessir skattar á þau skv. gildandi reglum á hverjum tíma. Virðisaukaskattur á sölu á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns er 11%.

2. gr.

Ekki er takmarkaður aðgangur húsveitu að heitu vatni umfram það sem heimæð og veitukerfi gera. Hitaveitu Fjarðabyggðar er heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu búnaðarins.

3. gr.

Seðilgjald kr. 279 leggst á útsenda prentaða reikninga en hægt er að komast hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4. gr.

Reikninga skal greiða á eindaga. Séu reikningar ekki greiddir á eindaga er send út tilkynning um vanskil. Reikningar eru því næst sendir til innheimtuaðila. Vextir leggjast við skuldina sé ekki greitt á eindaga

5. gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. Lesið verður af mælum mánaðarlega og reikningar gerðir fyrir raunnotkun hvers mánaðar. Fyrir þær veitur sem ekki er möguleiki að lesa af mánaðarlega er áætlunarreikningur sendur út byggður á áætlun sem tekur mið af fyrri notkun. Einu sinni á ári hið minnsta er sendur uppgjörsreikningur sem byggður er á álestri og er hann uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem sendir hafa verið.

6. gr.

Húseigandi, eða sá sem skráður er fyrir mæli, er ábyrgur fyrir því að tilkynna flutning og er ábyrgur fyrir orkunotkun þar til tilkynning um annan notanda hefur verið móttekin hjá hitaveitunni.

7. gr.

Verð fyrir afnot af heitu vatni er eftirfarandi:

A.  Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns:

Grunnverð kr. 197,86

B.  Samkvæmt vatnsmæli fyrir hverja kílóvattsstund (kWh):

Grunnverð kr. 4,23

C.  Mælagjald – fast gjald:

Mælir Krónur á ári
15 og 20 mm 38.454
25 mm 129.512
32 mm 250.085
40 mm 509.093
50 mm 982.120

Um afnot af vatni hitaveitu til annarra nota en húshitunar gilda sérstök gjöld sem ákveðin eru hverju sinni en þó með hliðsjón af gjaldskrá hitaveitunnar.

D.  Önnur gjöld:

Umbeðinn aflestur af mælum 1.761 kr.
Lokunargjald 2.388 kr.
Skiptigjald 2.925 kr.
Innheimtugjald er í höndum innheimtuaðila.  

8. gr.

Bráðabirgðaheimlagnir:

Stofngjald:
Lögn

Grunnverð kr.
20 mm 33.188
25 mm 41.948
32 mm 43.347
Lengdargjald:  
20 mm kr./metra 4.662
25 mm kr./metra 5.962
32 mm kr./metra 5.962

Lengdargjald er greitt fyrir hvern metra í heimlögn sem lögð er til bráðabirgða. Ef bráðabirgðaheimlögn verður síðar notuð sem aðalheimlögn fyrir hús, greiðist ekkert lengdargjald vegna bráðabirgðatengingar. Bráðabirgðaheimlagnir skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

9. gr.

Aðalheimæðar – heimtaugagjöld:

Stofngjald:  
Lögn Inntaksgjald kr.
20 mm 610.638
25 mm 793.825
32 mm 1.071.663
40 mm 1.500.327
50 mm 2.175.233

Tengigrind er ekki innifalin í heimæðargjaldi.

Ef heimlagnagjald stendur ekki undir kostnaði í frágengnu hverfi er heimlagnagjald fyrir nýja eða stækkaða heimlögn greitt samkvæmt kostnaðaráætlun.

Heimæð hitaveitu liggur frá götulögn eða tengibrunni og inn fyrir húsvegg húsveitu að inntaksloka.

Aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta skal vera 34.989 kr.

10. gr.

Lengdargjald í dreifbýli skal vera samkvæmt kostnaði en lengdargjald í þéttbýli er 9.927 kr. og er greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðamarka.

11. gr.

Önnur atriði til skýringa:

Stærð heimlagnar fer eftir hússtærð og starfsemi sem þar er áætluð. Húseigandi og hönnuður ákveða stærð heimlagna en hitaveita Fjarðabyggðar ákveður lágmarksstærð heimlagna fyrir íbúðarhús.

Eigandi íbúðarhúss/fyrirtækis þarf að sækja tímanlega um heimlögn á þar til gerðu eyðublaði, hvort sem um er að ræða nýja heimlögn, færslu, breytingu eða stækkun á eldri heimlögn. Teikningar skulu fylgja umsókn.

Heimlagnargjald skal greitt fyrir hverja heimlögn er tengir húsveitu við kerfi veitunnar. Heimlagnargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

Þegar heimlögn er stækkuð eða þegar heimlögn er breytt samkvæmt beiðni viðskiptavinar, skal greiða fyrir breytinguna samkvæmt samkomulagi og skal tekið mið af raunkostnaði við breytinguna.

Heimilt er að veita afslátt af tengigjöldum ef tengikostnaður er sannanlega lægri en gjaldskrá miðar við.

Heimilt er að leggja álag á tengigjald ef tengikostnaður er sannanlega hærri en gjaldskrá miðar við.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarráði og bæjarstjórn Fjarðabyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, til að öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá sama efnis, nr. 1558/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. desember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 15. desember 2025

Tengd mál