Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Fjölmiðlar

Undirritunardagur

11. september 2026

Útgáfudagur

14. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 986/2026

11. september 2026

REGLUR

um úthlutun styrkja úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla.

1. gr. Gildissvið.

Reglurnar gilda um einkarekna fjölmiðla sem afla og miðla fréttum og fréttatengdu efni.

Með einkareknum fjölmiðli er átt við fjölmiðil sem er hvorki í heild né að hluta í opinberri eigu, þ.e. hvorki í eigu opinberra hlutafélaga, ríkis, sveitarfélaga eða stofnana né í eigu félags eða annars lögaðila sem er alfarið í eigu opinberra hlutafélaga, ríkis, sveitarfélaga eða stofnana.

Með fréttum er átt við reglubundna miðlun frásagna af atburðum líðandi stundar sem varða almenning að mati fjölmiðils.

Með fréttatengdu efni er átt við efni sem hefur skírskotun í fréttir, t.d. fréttaskýringar, frásagnir og umræður líðandi stundar um efni í víðum skilningi frá mismunandi sviðum þjóðfélagsins sem er ofarlega á baugi hér á landi eða erlendis hverju sinni.

Reglurnar gilda ekki um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, sbr. lög nr. 23/2013.

2. gr. Tilgangur og markmið.

Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla veitir styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum. Úthlutanir úr sjóðnum verða annars vegar í formi verkefnastyrkja til stofnunar og þróunar nýrra fréttamiðla og hins vegar til nýsköpunarverkefna innan starfandi fréttamiðla.

3. gr. Úthlutunarnefnd og skipulag.

Ráðherra skipar þriggja manna úthlutunarnefnd. Einn fulltrúi úthlutunarnefndar skal skipaður samkvæmt tilnefningu Vísinda- og nýsköpunarráðs, og skal hann vera formaður, einn samkvæmt tilnefningu Blaðamannafélags Íslands og einn samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fulltrúar í úthlutunarnefnd skulu hafa sérþekkingu á fjölmiðlamálum eða nýsköpun og þróun og menntun sem nýtist á þessu sviði.

Úthlutunarnefnd leggur mat á umsóknir með hliðsjón af hlutverki sjóðsins. Rannís annast umsýslu sjóðsins og tekur við umsóknum á heimasíðu sinni gegnum rafrænt umsóknarkerfi.

4. gr. Auglýsingar og umsóknir.

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði í dagblöðum eða með öðrum sannanlegum hætti. Umsókn skal berast Rannís rafrænt. Í auglýsingu skal tilgreina þær kröfur sem gerðar eru til umsókna og fyrir hvaða tíma þær skuli berast. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn koma ekki til mats.

Í umsókn um styrk skal lýsa hvernig umsækjendur hyggjast verja styrknum. Í umsókn skulu eftirtalin atriði koma fram eftir því sem við á:

  1. Upplýsingar um umsækjanda og aðra þátttakendur í verkefni ef við á.
  2. Ítarleg lýsing á verkefni.
  3. Tíma- og kostnaðaráætlun verkefnis og önnur fjármögnun.

Umsækjendum er heimilt að sækja um styrki til fleiri verkefna en eins.

Við mat á umsóknum ber að hafa gæði og nýbreytni verkefnisins í fyrirrúmi. Ekki eru veittir styrkir til kjarnastarfsemi eða reglubundins reksturs fjölmiðla, uppbyggingar aðstöðu, s.s. húsnæðis, eða stakir ferðastyrkir.

Rannís er heimilt að óska eftir viðbótarupplýsingum frá umsækjanda.

Njóti umsækjandi annarra styrkja eða framlaga fyrir verkefnið skal það koma fram í umsókn.

Öllum umsóknum skal svarað skriflega.

5. gr. Fjármögnun og úthlutanir.

Sjóðnum eru lagðar til 40 m.kr. af fjárlögum ársins 2026.

Við úthlutun styrkja er miðað við að styrkur til verkefnis nemi ekki hærri fjárhæð en helmingi þeirrar upphæðar sem til úthlutunar er.

6. gr. Styrkir.

Styrkir úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla eru ákveðnir í samræmi við úthlutunarreglur þessar. Styrkir skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki til lengri tíma en eins árs í senn.

7. gr. Skilyrði fyrir styrkveitingum til nýrra fjölmiðla.

Veita má styrki til stofnunar og þróunar á nýjum, sjálfstæðum fjölmiðlum, sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Miðla ritstýrðum fréttum og fréttatengdu efni sem byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum blaðamanna. Með sjálfstæðum vinnubrögðum blaðamanna er m.a. átt við að miðlun byggist ekki í meginatriðum á endurbirtingu efnis eða þýðingu á efni annarra fjölmiðla og að efni er ekki að meginhluta unnið með gervigreind.
  2. Hafa skráð starfsemi sína og tilgreint fyrirsvars- og ábyrgðarmann í samræmi við ákvæði IV. kafla laga um fjölmiðla nr. 38/2011, eigi síðar en 6 mánuðum eftir að styrkur er veittur.
  3. Störf á ritstjórn fjölmiðils samsvari a.m.k. einu stöðugildi á ársgrundvelli, eigi síðar en 6 mánuðum eftir að styrkur er veittur.

Með nýjum, sjálfstæðum fjölmiðlum er átt við fjölmiðla sem eru ekki hluti af rekstri fjölmiðlaveitu, eða fjölmiðlasamstæðu, sem þegar hefur skráð starfsemi sína samkvæmt lögum um fjölmiðla nr. 38/2011.

Ekki er unnt að fá samtímis styrk til stofnunar og þróunar nýs fjölmiðils og stuðning úr almennu stuðningskerfi fjölmiðla, sbr. X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

8. gr. Skilyrði fyrir styrkveitingum til starfandi fjölmiðla.

Veita má nýsköpunar- og þróunarstyrki til einkarekinna fjölmiðla sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Miðla ritstýrðum fréttum og fréttatengdu efni sem byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum blaðamanna. Með sjálfstæðum vinnubrögðum blaðamanna er m.a. átt við að miðlun byggist ekki í meginatriðum á endurbirtingu efnis eða þýðingu á efni annarra fjölmiðla og að efni er ekki að meginhluta unnið með gervigreind.
  2. Eru skráðir eða hafa leyfi til hljóð- og myndmiðlunar, og hafa tilgreindan fyrirsvars- og ábyrgðarmann, á öllu verkefnatímabilinu, í samræmi við IV. kafla laga um fjölmiðla nr. 38/2011.
  3. Störf á ritstjórn fjölmiðils samsvari a.m.k. einu stöðugildi á ársgrundvelli

Til greina kemur að styrkja samvinnuverkefni fjölmiðla með hærri fjárhæð en hver fjölmiðill hefði fengið með því að sækja um, hver fyrir sig.

9. gr. Afgreiðsla umsókna og úthlutun.

Úthlutunarnefnd sendir tillögu um úthlutun til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Tillögur nefndarinnar skulu vera skriflegar og greina í stuttu máli frá málsmeðferð við tillögugerðina.

Rannís tilkynnir umsækjendum skriflega um afgreiðslu umsókna þeirra. Styrkþegum skal jafnframt tilkynnt um skilyrði sem styrkveiting er bundin og endurgreiðslu, hafi verkefni sem hlotið hefur styrk ekki verið unnið í samræmi við umsókn og reglur.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti úthlutar og annast greiðslu styrkja úr sjóðnum.

Viðtaka styrkfjár felur í sér viðurkenningu á að styrkþegi fallist á þau skilyrði sem styrkveiting er bundin. Í svarbréfum til styrkþega birtast skilmálar nýsköpunar- og þróunarsjóðs og upplýsingar um greiðslutilhögun.

Styrkir eru greiddir út í einu lagi.

Niðurstaða úthlutunar úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla er að jafnaði birt tveimur mánuðum eftir umsóknarfrest, umsækjendur fá svarpóst og listi styrkþega er birtur á heimasíðu Rannís.

Á verkefnatímabilinu er ekki unnt að fá samtímis styrk til nýrra fjölmiðla skv. 7. gr. og styrk til starfandi fjölmiðla skv. 8. gr. vegna sama fjölmiðils.

10. gr. Upplýsingagjöf og uppgjör.

Að verkefni loknu skila styrkþegar lokaskýrslu um árangur og niðurstöður til Rannís innan þriggja mánaða frá áætluðum lokum verkefnis. Heimilt er að krefjast endurgreiðslu hafi verkefni sem hlotið hefur styrk ekki verið unnið í samræmi við umsókn og þau gögn sem styrkveiting var byggð á, hafi verkefnið ekki verið unnið eða lokaskýrslu ekki skilað innan þriggja mánaða frá áætluðum lokum verkefnisins.

Umsókn um frest skal vera skrifleg og rökstudd. Jafnframt er heimilt að hafna umsóknum viðkomandi styrkþega um nýja styrki þar til úrbætur hafa verið gerðar að mati úthlutunarnefndar.

Úthlutunarnefnd afhendir ráðherra skýrslu að úthlutun lokinni, þar sem fram kemur mat á framkvæmdinni og tillögur að úrbótum.

11. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og 5. gr. reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018. Reglur þessar taka þegar gildi og falla úr gildi 31. desember 2026.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 11. september 2026.

Logi Einarsson.

Sigríður Valgeirsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 14. september 2026

Tengd mál