Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Matvæli, Umhverfismál, Akureyri, Þingeyjarsýslur, Eyjafjarðarsýsla, Dalvíkurbyggð, Norðurþing

Undirritunardagur

2. janúar 2026

Útgáfudagur

19. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 20/2026

2. janúar 2026

GJALDSKRÁ

fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, lögum um matvæli nr. 93/1995 og lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og reglugerðum settum með stoð í framantöldum lögum er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald kr. 21.600
Gjald fyrir rannsókn á hverju sýni m.t.t. örvera og eðlisþátta kr. 34.000

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald sem hér segir:

1. flokkur kr.    13.812 7. flokkur kr. 169.723
2. flokkur kr.    27.708 8. flokkur kr. 199.659
3. flokkur kr.    50.984 9. flokkur kr. 253.013
4. flokkur kr.    75.539 10. flokkur kr. 332.578
5. flokkur kr.    93.631 11. flokkur kr. 375.790
6. flokkur kr. 137.237 12. flokkur kr. 414.443

Flokkun eftirlitsskyldrar starfsemi kemur fram í viðauka með gjaldskrá þessari.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.

Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu, hefur haft vottað gæðakerfi eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni, sem heilbrigðisnefnd telur ganga lengra en reglur kveða á um, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld samkvæmt þessari grein.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur.

3. gr.

Heimilt er að innheimta gjald fyrir eftirlitsskylda starfsemi og önnur verkefni og þjónustu sem hér segir

Ný starfsemi:  
  Starfsleyfisgjald og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks, ásamt auglýsingakostnaði ef við á. kr. 35.000
Endurnýjun starfsleyfis:  
  Starfsleyfisgjald og auglýsingakostnaður ef við á. kr. 35.000
Fyrir skráningarskylda starfsemi skv. reglugerð nr. 830/2022:
  Staðfesting á skráningu og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks. kr. 35.000
Fyrir leyfi útgefin vegna sölu á útimörkuðum, eða aðra skammtíma starfsemi:
  Starfsleyfisgjald og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar, úttektar og frágangs ef við á. kr. 22.000
Fyrir tóbakssöluleyfi:
  Leyfisgjald kr. 43.400
Fyrir skipaskoðun kr. 86.400

Fyrir umfangsmeiri skipaskoðun greiðist eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

4. gr.

Heimilt er að fella starfsleyfi úr gildi ef eftirlitsgjöld skv. 2. gr. eru ekki greidd að undangengnum tilhlýðilegum fresti. Séu gjöld skv. 3. gr. ekki greidd fellur starfsleyfið sjálfkrafa úr gildi.

5. gr.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra er heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Aðildarsveitarfélögin annast innheimtu eftirlitsgjalda. Heilbrigðiseftirlit Norðurlandssvæðis eystra innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir leyfi, vottorð, skráningu og þjónustuverkefni. Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka I sem fylgir gjaldskrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra í samræmi við 46. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, 65. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og 25. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 11/2025.

Akureyri, 2. janúar 2026.

F.h. heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra,

Leifur Þorkelsson framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 19. janúar 2026

Tengd mál