Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál, Ökutæki
Undirritunardagur
21. júlí 2014
Útgáfudagur
6. ágúst 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 736/2014
21. júlí 2014
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
1. gr.
14. gr. breytist þannig:
Síðari málsliður ákvæðis 14.11 (2) orðist þannig:
Massi og dráttarmassi fólksbifreiðar telst innan leyfðra marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 92/21 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr.:
- Ákvæði 16.01 (5) orðist þannig:
Hvergi á aðalmynstri hjólbarða má mynstur þeirra vera undir tilskilinni dýpt. Aðalmynstur merkir grófa mynstrið á miðhluta slitflatarins sem þekur þrjá fjórðu (75%) af breidd hans. - Lokamálsliður ákvæðis 16.10 (6) fellur brott.
- Ákvæði 16.11 (1) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal fólksbifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 1,6 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal fólksbifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 3,0 mm mynstursdýpt. - Ákvæði 16.12 (1) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal hópbifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 1,6 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal hópbifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 3,0 mm mynstursdýpt. - Ákvæði 16.14 (1) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal vörubifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 1,6 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal vörubifreið búin hjólbörðum með a.m.k. 3,0 mm mynstursdýpt. - Lokamálsliður ákvæðis 16.20 (3) fellur brott.
- Lokamálsliður ákvæðis 16.50 (3) fellur brott.
- Ákvæði 16.51 (1) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal eftirvagn I sem gerður er fyrir meiri hraða en 30 km/klst, búinn hjólbörðum með a.m.k. 1,6 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal eftirvagn I sem gerður er fyrir meiri hraða en 30 km/klst, búinn hjólbörðum með a.m.k. 3,0 mm mynstursdýpt. - Ákvæði 16.53 (1) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal eftirvagn III sem gerður er fyrir meiri hraða en 30 km/klst, búinn hjólbörðum með a.m.k. 1,6 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal eftirvagn III sem gerður er fyrir meiri hraða en 30 km/klst, búinn hjólbörðum með a.m.k. 3,0 mm mynstursdýpt. - Ákvæði 16.102 (3) orðist þannig:
Á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október skal bifreið til neyðaraksturs búin hjólbörðum með a.m.k. 2,0 mm mynstursdýpt. Á tímabilinu frá og með 1. nóvember til og með 14. apríl skal bifreið til neyðaraksturs búin hjólbörðum með a.m.k. 4,0 mm mynstursdýpt.
3. gr.
21. gr. breytist þannig:
Ákvæði 21.11 (2) orðist þannig:
Þyngd dráttarbeislis á tengibúnað fólksbifreiðar telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 92/21 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr.:
- Síðari málsliður ákvæðis 22.11 (3) orðist þannig:
Þyngd og stærð fólksbifreiðar telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 92/21 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum. - Síðari málsliður ákvæðis 22.12 (7) orðist þannig:Þyngd og stærð hópbifreiðar telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 97/27 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum.
- Ákvæði 22.13 (4) orðist þannig:
Þyngd og stærð sendibifreiðar telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 97/27 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum. - Síðari málsliður ákvæðis 22.14 (3) orðist þannig:
Þyngd og stærð vörubifreiðar telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 97/27 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum. - Ákvæði 22.50 (3) orðist þannig:
Þyngd og stærð eftirvagns telst innan marka ef uppfyllt eru ákvæði EBE-tilskipunar nr. 97/27 eða EB-reglugerðar nr. 661/2009 og ESB-reglugerðar nr. 1230/2012, með síðari breytingum.
5. gr.
Viðauki III breytist þannig:
Tafla undir fyrirsögninni „bifreiðar og eftirvagnar":
Aftast í töfluna, á eftir tölulið 45zzr, kemur nýr töluliður, 45zzu. Í reitina „Tölul.", „Tilskipun / reglugerð", „Efnisinnihald" og „Reglugerðarákvæði" kemur:
45zzu | 1230/2012/ESB | Stærð og þyngd | 14.11 (2), 21.11 (2), 22.11 (3), 22.12 (7), 22.13 (4), 22.50 (3) |
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauki IV:
Tafla undir fyrirsögninni „bifreiðar og eftirvagnar":
- Í tölulið 45zu við tilskipun 692/2008/EB á eftir reglugerð 143/2013/ESB. Í reitina „síðari viðbætur", „Stjórnartíðindi EB" og „EES-birting", kemur:
195/2013/ESB
L 65, 8.3.2013
Birt í EES-viðbæti nr. 23, 10.4. 2014, bls. 327.
- Í tölulið 45zx við tilskipun 2007/46/EB á eftir reglugerð 143/2013/ESB. Í reitina „síðari viðbætur", „Stjórnartíðindi EB" og „EES-birting", kemur:
1230/2012/ESB
L 353, 21.12.2012
Birt í EES-viðbæti nr. 12, 27.2. 2014, bls. 32.
195/2013/ESB
L 65, 8.3.2013
Birt í EES-viðbæti nr. 23, 10.4. 2014, bls. 327.
- Aftast í töfluna, á eftir tölulið 45zzr, kemur nýr töluliður, 45zzu. Í reitina „Tölul.", „Tilskipun / reglugerð", „síðari viðbætur", „Stjórnartíðindi EB" og „EES-birting" kemur:
45zzu
Stærð og þyngd
1230/2012/ESB
L 353, 21.12.2012
Birt í EES-viðbæti nr. 12, 27.2. 2014, bls. 32.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 60. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi, að undanskilinni 2. gr. sem skal taka gildi 1. nóvember 2014.
Innanríkisráðuneytinu, 21. júlí 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.