Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
19. júní 2026
Útgáfudagur
3. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 759/2026
19. júní 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Leynir 2, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 25. mars 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir Leyni 2. Með nýju deiliskipulagi er dregið verulega úr umfangi starfsemi. Eldra deiliskipulag verður fellt úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Nýtt deiliskipulag nær yfir um 4 ha af landi Leynis 2. Gert er ráð fyrir gistingu í þjónustuhúsi og minni gestahúsum (kúluhúsum) fyrir allt að 50 gesti, skv. flokki II. Þá verður áfram heimilt að reka tjaldsvæði. Heimilt verður að vera með fasta búsetu. Aðkoma að svæðinu er af Landvegi 26. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 19. júní 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2026