Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Lögreglumál, Útlendingar
Undirritunardagur
11. júní 2026
Útgáfudagur
11. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 49/2026
11. júní 2026
LÖG
um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag Evrópusambandsins).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
1. gr.
3. tölul. 3. gr. laganna orðast svo: AMMR-samstarfið: Samstarf byggt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 frá 14. maí 2024 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga, um breytingu á reglugerðum (ESB) 2021/1147 og (ESB) 2021/1060 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 604/2013.
2. gr.
Í stað 3. málsl. 7. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þá er frestur til kæru á ákvörðunum Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð á grundvelli 36. gr. sjö dagar frá birtingu ákvörðunar, sama gildir um beiðni um frestun réttaráhrifa. Greinargerð skal berast kærunefnd útlendingamála samhliða kæru innan sama frests.
3. gr.
Tilvísunin „36.“ í 1. mgr. 35. gr. laganna fellur brott.
4. gr.
2. mgr. 36. gr. laganna orðast svo:
Ákvæði III., V. og VII. hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 frá 14. maí 2024 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga, um breytingu á reglugerðum (ESB) 2021/1147 og (ESB) 2021/1060 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 604/2013 og ákvæði 12. og 13. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 frá 14. maí 2024 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála og um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1147, ásamt 1.–6. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 að því marki sem þær tengjast 12. og 13. gr., skulu hafa lagagildi hér á landi, sbr. auglýsingu nr. 6/2026 í C-deild Stjórnartíðinda.
5. gr.
Á eftir 36. gr. laganna kemur ný grein, 36. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Skylda umsækjanda til samvinnu.
Við meðferð mála skv. 36. gr. er umsækjanda skylt að vinna með stjórnvöldum að rannsókn máls og framkvæmd ákvörðunar. Umsækjandi skal m.a. veita nauðsynlegar upplýsingar og mæta til viðtala eða annars sem krafist er samkvæmt lögum eða reglugerð.
Skortur á samvinnu umsækjanda getur, að teknu tilliti til atvika máls og í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, haft áhrif á meðferð máls, þar á meðal fresti og hraða málsmeðferðar.
Ráðherra getur sett nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð.
6. gr.
Á eftir 110. gr. laganna kemur ný grein, 110. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Lögfesting reglugerðar (ESB) um evrópska fingrafaragrunninn.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1358 frá 14. maí 2024 um stofnun evrópska fingrafaragrunnsins „Eurodac“ til að bera saman lífkennaupplýsingar í því skyni að stuðla að skilvirkri beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 og (ESB) 2024/1350 og tilskipunar ráðsins 2001/55/EB og til að staðfesta deili á ríkisborgurum þriðju landa og ríkisfangslausum einstaklingum sem dvelja þar ólöglega og um beiðnir löggæsluyfirvalda aðildarríkjanna og Löggæslusamvinnustofnunar Evrópusambandsins um samanburð við gögn í evrópska fingrafaragrunninum í löggæslutilgangi, um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2019/818 og um niðurfellingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 603/2013, að undanskildum 8.–11. gr. I. kafla, VII., VIII. og XIV. kafla reglugerðarinnar, skal hafa lagagildi hér á landi, sbr. auglýsingu nr. 6/2026 í C-deild Stjórnartíðinda.
7. gr.
111. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Ljósmyndir og fingraför.
Í þágu máls er heimilt að taka ljósmyndir og fingraför af útlendingi sem:
- getur ekki fært sönnur á hver hann er eða ef ástæða er til að ætla að útlendingurinn gefi rangar upplýsingar um hver hann er,
- sækir um alþjóðlega vernd eða hefur verið synjað um alþjóðlega vernd,
- kemur til landsins í boði stjórnvalda skv. 43. gr.,
- er stöðvaður í ólögmætri för yfir ytri landamæri,
- hefur verið vísað frá landi eða úr landi,
- dvelst ólöglega á landinu.
Andlitsmyndir og fingraför sem tekin eru skv. 1. mgr., ásamt öðrum persónuupplýsingum sem auðkenna útlending, er heimilt að skrá í evrópska fingrafaragrunninn samkvæmt nánari reglum sem kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1358 frá 14. maí 2024 um stofnun evrópska fingrafaragrunnsins „Eurodac“, sbr. 110. gr. a.
Heimild 2. mgr. gildir um útlendinga sem hafa náð sex ára aldri.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 120. gr. laganna:
- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Málsmeðferð og framkvæmd við að ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351, þar á meðal um viðmiðanir og það fyrirkomulag sem liggur til grundvallar slíkri ákvörðun.
- Á eftir 14. tölul. 2. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Framkvæmd 36. gr. a, þar á meðal um skyldu umsækjenda til samvinnu og áhrif skorts á samvinnu á málsmeðferð.
- 41. tölul. 2. mgr. orðast svo: Evrópskan fingrafaragrunn, svo sem um skráningu, persónuvernd við skráningu og meðferð upplýsinga í grunninum, um ábyrgð og aðgang að fingrafaragrunninum og sannprófunarstjórnvald.
II. KAFLIBreyting á lögreglulögum, nr. 90/1996.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. a laganna:
- Í stað orðanna „skiptast á“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skiptast með sjálfvirkum hætti á andlitsmyndum.
- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Lögregla skal, í löggæslutilgangi, hafa aðgang að upplýsingakerfum Evrópusambandsins, svo sem komu- og brottfararkerfinu, ferðaupplýsinga- og ferðaheimildakerfinu, upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir og sameiginlega auðkennasafninu, í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 4. gr. gildi 12. júní 2026 að því er varðar lögfestingu ákvæða 12. og 13. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 frá 14. maí 2024 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála og um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1147, ásamt 1.–6. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 að því marki sem þær tengjast 12. og 13. gr. Ákvæði 6.–9. gr. öðlast einnig gildi 12. júní 2026.
Gjört í Reykjavík, 11. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026