Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
19. maí 2026
Útgáfudagur
27. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 555/2026
19. maí 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um samstarf og upplýsingaskipti á sviði greiðsluþjónustu, nr. 300/2023.
1. gr.
1. tölul. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2055 frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu, sem er birt á bls. 44-68 í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023, með leiðréttingu samkvæmt framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/212 frá 13. september 2024 um leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2017/2055 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu, sem er birt á bls. 356-357 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 18. desember 2025. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019. Framselda reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2025 frá 19. september 2025.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 114. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. maí 2026.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
B deild — Útgáfudagur: 27. maí 2026