Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Grundarfjarðarbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla
Undirritunardagur
21. janúar 2026
Útgáfudagur
10. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 128/2026
21. janúar 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grundarfjarðarbæ.
Deiliskipulag fyrir Háls – óveruleg deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti 11. desember 2025 óverulega deiliskipulagsbreytingu í landi Háls, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í gildi er deiliskipulag Háls sem upphaflega var samþykkt í bæjarstjórn 13. júní 2013 og staðfest með auglýsingu nr. 728/2013 í B-deild Stjórnartíðinda.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að aðkomu, byggingarreitum og byggingarskilmálum er breytt á Sólbakka, lóð B. Hesthús og frístundahús verða að gistihúsum. Á Sólbakka, lóð A, færast byggingarreitir til og frístundahúsi er breytt í einbýli. Breytingin felur ekki í sér aukið byggingarmagn og er í samræmi við aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2019-2039.
Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Grundarfirði, 21. janúar 2026.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 10. febrúar 2026