Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Umferðarmál, Atvinnuréttindi, Leigubifreiðar
Undirritunardagur
21. september 2026
Útgáfudagur
5. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1055/2026
21. september 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu námskrár fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
1. gr.
Með vísan til 58. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, 5. gr. laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og 4. gr. reglugerðar um leigubifreiðaakstur, nr. 324/2023, hefur innviðaráðherra staðfest námskrá Samgöngustofu fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
2. gr.
Námskráin sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi eldri námskrá fyrir leigubifreiðaréttindi sem staðfest var 14. janúar 2005.
Innviðaráðuneytinu, 21. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
NÁMSKRÁ
Samgöngustofu fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
I. KAFLIInngangur.
Samgöngustofa setur námskrá fyrir hvern flokk ökuréttinda, að höfðu samráði við hagaðila, sem ráðherra staðfestir. Námskrá skal kveða á um þá þekkingu, hæfni og leikni sem umsækjandi þarf að hafa til að öðlast aukin ökuréttindi. Námskrá þessi kveður á um tilskilið bóklegt og verklegt framhaldsnám til að öðlast réttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Nám til aukinna ökuréttinda skal fara fram í ökuskóla sem hefur starfsleyfi Samgöngustofu, sbr. reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011. Námskrá fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni byggir á umferðarlögum, nr. 77/2019, þar sem fram kemur í 58. gr. að ráðherra setur námskröfur fyrir bifreið í C1-, C-, D1- og D-flokki, sem og til farþega- og farmflutninga í atvinnuskyni. Námskrá þessi byggir einnig á lögum um leigubifreiðar, nr. 120/2022, og reglugerð um leigubifreiðaakstur, nr. 324/2023. Í 5. gr. framangreindra laga um leigubifreiðar er kveðið á um að skilyrði atvinnuleyfis sé að hafa fullnægjandi starfshæfni, þ.m.t. fullnægjandi ökuréttindi og tilskilin námskeið sem nánar er fjallað um í reglugerð. Í 4. gr. reglugerðar um leigubifreiðaakstur kemur fram að umsækjandi um atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs skuli hafa lokið námskeiði um leigubifreiðaakstur og hafa staðist próf.
II. KAFLIHæfniviðmið náms.
Í allri kennslu og þjálfun ökunema sem sækja um aukin ökuréttindi skal hafa það að meginmarkmiði að ökunemi:
- sé fær um að stjórna ökutækjum í þeim flokki ökuréttinda sem hann er að afla sér réttinda til að mega aka með fullri árvekni og af færni, framsýni og öryggi,
- hafi innsýn í og skilning á hættum og erfiðleikum sem stjórnendur atvinnubifreiða mæta í umferðinni og á hvern hátt hann geti stuðlað að betri umferðarmenningu,
- þekki umferðarreglur til hlítar og þekki önnur lög og reglugerðir er lúta að umferð og ökutækjum,
- kunni góð skil á ökutækjum í þeim flokki ökuréttinda sem hann er að afla sér réttinda til að mega aka og að hann geti fylgst með því að þau séu í öruggu og lögmæltu ástandi,
- viti hvernig skuli bregðast við bilunum eða göllum sem upp geta komið í ökutækjum,
- þekki ýmsa þætti er snerta starf ökumanna á bifreiðum til farþegaflutninga í atvinnuskyni,
- þekki andlega og líkamlega þætti sem takmarka mannlega getu við akstur,
- sýni öðrum vegfarendum tillitssemi, einkum þeim sem eru berskjaldaðir og varnarlausir í umferðinni,
- sé öðrum góð fyrirmynd í umferðinni.
Þessum markmiðum skal ná með því að ökunemi stundi bóklegt og verklegt nám í ökuskóla áður en hann gengst undir próf.
Eftir að hafa sýnt fullnægjandi árangur á prófum hefur ökunemi uppfyllt kröfur um nám og próf til að fá útgefin ökuréttindi fyrir þann flokk ökuréttinda sem við á.
III. KAFLISkipulag náms.
Námi til aukinna ökuréttinda er skipt í grunnnám og framhaldsnám.
Í skipulagi framhaldsnáms er gert ráð fyrir að ökunemi hafi lokið grunnnámi samkvæmt almennri námskrá til aukinna ökuréttinda með prófi á vegum ökuskóla (skólaprófi).
Bóklegu framhaldsnámi lýkur með opinberu prófi á vegum Samgöngustofu. Ef lengra en 12 mánuðir eru liðnir síðan ökunemi stóðst opinbert próf úr framhaldsnámi þarf hann að standast það aftur áður en hann getur þreytt verklegt próf til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Einnig er gert ráð fyrir að ökunemi hafi lokið fullgildu námskeiði í skyndihjálp áður en viðkomandi hefur nám til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Ef lengri tími en tvö ár er liðinn frá því að ökunemi lauk grunnnámi með prófi þarf viðkomandi einnig að endurnýja námskeið í skyndihjálp, nema hann sé með viðurkennt skyndihjálparnámskeið í gildi.
Í framhaldsnámi fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni eru 16 bóklegar kennslustundir í námsgreininni ferðafræði sem deilast niður á eftirfarandi námsþætti:
Þjónusta við farþega.
- Mismunandi þarfir farþega.
- Fíkniefni og áfengi.
- Rötun.
- Náttúruvernd og ferðamennska.
- Gjaldtaka af farþegum.
Reglur um farþegaflutninga.
- Stjórnsýslan.
- Reglur um farþegaflutninga í atvinnuskyni.
- Aðbúnaður farþega.
- Fjarskipti o.fl.
Slysavarnir og björgun.
- Eldsvoðar, afleiðingar og rétt viðbrögð.
- Björgunarstarf.
Verkleg kennsla.
Fjöldi verklegra kennslustunda er mismunandi eftir því hvort um fólksbifreið eða hópbifreið er að ræða, en þó aldrei færri en 3 kennslustundir. Námsþættir verklegrar kennslu deilast niður á eftirfarandi þætti:
- Öryggisskoðun ökutækis.
- Sérstakar leikniæfingar.
- Akstur í umferð.
IV. KAFLIFerðafræði.
4.1 Markmið.
Námsgreinin ferðafræði er fyrir þá sem vilja öðlast rétt til að flytja farþega gegn gjaldi með fólksbifreið eða hópbifreið. Leggja skal ríka áherslu á ábyrgðarhlutverk atvinnubílstjórans og skilning hans á því að farþegaflutningar eru þjónustustarf þar sem bílstjórar gegna veigamiklu hlutverki. Þjónusta og flutningur farþega lýtur að nokkru öðrum lögmálum en flutningur farms og því þarf hér að útvíkka efni um þjónustu sem farið er yfir í umferðarsálfræði í grunnnámi. Mikilvægt er að ökunemi geri sér grein fyrir að aðbúnaður farþega þurfi að vera í fyrirrúmi og að akstur þurfi að vera mjúkur svo að farþeginn finni sig öruggan.
4.2 Hæfniviðmið.
Þjónusta við farþega.
Markmiðið er að ökunemi öðlist þekkingu og færni til að geta veitt farþegum faglega og góða þjónustu. Hann þarf að þekkja mismunandi þarfir farþega og geta mætt þeim og veitt þeim þjónustu við hæfi s.s fólki með fötlun og öldruðum. Einnig þarf ökunemi að þekkja helstu einkenni vímuefna og hvernig best er að nálgast farþega undir áhrifum þeirra með eigið öryggi í huga og annarra farþega. Auk þess þarf ökunemi að geta ratað og nýtt sér þann búnað sem í boði er til aðstoðar við rötun. Hann þarf að geta leiðbeint farþegum sínum og svarað spurningum þeirra og getað vísað þeim til vegar. Einnig þarf hann að þekkja reglur um náttúruvernd og gjaldtöku af farþegum sínum.
Mismunandi þarfir farþega.
Ökunemi skal:
- þekkja góðar venjur og reglur um umgengni við farþega,
- þekkja góðar venjur og reglur um það hvernig á að umgangast sérstaka hópa farþega, svo sem skólabörn, aldraða og fólk með fötlun,
- öðlast færni í að leysa vanda sem upp kann að koma í samskiptum við farþega,
- geta mætt mismunandi þörfum farþega,
- geta nýtt sér fjarskiptatæki við vinnu sína,
- þekkja helstu tegundir fatlana,
- þekkja hvað þarf að hafa í huga varðandi stærð og aðbúnað í bifreið fyrir fólk með fötlun,
- öðlast færni í samskiptum við blinda, sjónskerta, heyrnarlausa og heyrnarskerta.
Fíkniefni og áfengi.
Ökunemi skal:
- þekkja algengustu fíkniefni sem eru í umferð hverju sinni,
- geta greint helstu einkenni einstaklings undir áhrifum fíkniefna,
- geta ályktað hvernig á að eiga árangursrík samskipti við fólk undir áhrifum fíkniefna og áfengis.
Rötun.
Ökunemi skal:
- vita hvernig auðveldast er að rata um gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins og annarra stórra þéttbýlisstaða,
- vita hvernig hann getur kynnt sér hvar ýmsar opinberar byggingar, sjúkrahús, söfn, veitingahús og aðrir staðir eru,
- geta nýtt sér kort og kennileiti til að rata,
- geta valið hagkvæmar leiðir fyrir farþega og leiðbeint þeim og vísað til vegar,
- geta nýtt sér fjarskiptatæki við vinnu sína.
Náttúruvernd og ferðamennska.
Ökunemi skal:
- þekkja tilgang og staðsetningu friðlýstra svæða á Íslandi,
- vita hvað bílstjóri getur gert til að koma í veg fyrir spjöll á náttúru og umhverfi,
- gera sér grein fyrir skyldum og möguleikum bílstjóra til að tilkynna brot á náttúruverndarlögum,
- kunna skil á ferðamennsku sem atvinnugrein,
- gera sér grein fyrir hlutverki bifreiða í farþegaflutningi í uppbyggingu ferðaþjónustu,
- vita hvar upplýsingar er að finna um hvar landverðir og skálaverðir starfa,
- geta gengið um náttúru landsins af virðingu og ábyrgð og virt þau lög og reglur sem gilda um náttúruvernd og ferðamennsku.
Gjaldtaka af farþegum.
Ökunemi skal:
- þekkja reglur um gjaldtöku af farþegum og skyldar reglur,
- þekkja lög og reglur er varða sýnileika gjaldskrár og akstur gegn fyrir fram umsömdu gjaldi,
- kunna skil á reglum um greiðslukort og önnur greiðsluform sem ætla má að viðskiptavinir muni nota,
- kunna skil á tryggingum farþega.
Reglur um farþegaflutninga.
Markmiðið er að ökunemi þekki og hafi yfirsýn yfir þá hluta stjórnsýslunnar er lúta að farþegaflutningum í atvinnuskyni. Að hann þekki helsta fjarskiptabúnað sem notast er við til að hafa samskipti við farþega, bílstjóra eða aðra. Að hann viti hvaða reglur gilda um aðbúnað farþega og hvernig hann skal vera ásamt því að kunna skil á þeim björgunar- og neyðarbúnaði sem áskilið er að sé til staðar í bifreiðum sem notaðar eru til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Auk þess þarf hann að átta sig á og skilja tilganginn með þeim lögum og ákvæðum sem fjalla um öryggi og aðbúnað farþega.
Stjórnsýslan.
Ökunemi skal:
- þekkja hlutverk stofnana stjórnsýslunnar í tengslum við farþegaflutning í atvinnuskyni,
- þekkja rafrænar skrár og kröfur til rekstrarleyfishafa leigubifreiða hvað slíka skrá varðar,
- þekkja kröfur til rekstrarleyfishafa leigubifreiða um skráningu í gagnagrunn Samgöngustofu varðandi hver er við akstur hverju sinni (akstursheimild),
- kunna að innheimta gjöld af farþegum sínum og standa skil á gögnum því tengdu,
- þekkja reglur um sérbúnað og auðkenningu bifreiða sem notaðar eru til farþegaflutninga,
- þekkja skyldur leyfishafa, bílstjóra og annarra er við farþegaflutninga starfa,
- þekkja skilyrði starfsleyfa og þær reglur sem gilda um þau,
- þekkja reglur um öryggisbúnað ökumanns og farþega s.s. notkun öryggisbelta og sérstaks búnaðar fyrir börn,
- þekkja helstu atriði laga og reglugerða um farþegaflutninga.
Aðbúnaður farþega.
Ökunemi skal:
- þekkja reglur og góðar venjur um aðbúnað farþega, upphitun, loftræstingu, reykingar, hreinlæti í bifreiðum til farþegaflutninga,
- þekkja reglur um neyðarútganga, slökkvitæki, sjúkrakassa og annan öryggisbúnað bifreiða,
- öðlast leikni í að rýma bifreið á sem skemmstum tíma,
- kunna skil á aðferðum við „mjúkan akstur“ á bifreiðum og að rækta með sér viðhorf um að slíkur akstur sé nauðsynlegur í farþegaflutningum,
- geta útbúið ökutæki sitt í samræmi við reglur um aðbúnað farþega.
Slysavarnir og björgun.
Markmiðið er að ökunemi rifji upp og auki þekkingu sína í slysavörnum og skyndihjálp í þeim tilgangi að geta sem bílstjóri við farþegaflutninga brugðist skynsamlega við á slysstað, kallað eftir aðstoð og sinnt umönnun á slysstað þar til hjálp berst. Auk þess á hann að geta gripið til fyrirbyggjandi aðgerða til að draga úr líkum á að eldsvoði komi upp í bifreið.
Eldsvoðar og afleiðingar.
Ökunemi skal:
- þekkja helstu orsakir eldsvoða í bifreiðum og vita hvernig unnt er að koma í veg fyrir slíka eldsvoða,
- þekkja mismunandi gerðir slökkvitækja og sjúkrakassa sem samkvæmt lögum ber að hafa í bifreiðum sem notaðar eru til farþegaflutninga,
- þekkja eldfim efni í bifreiðum,
- vita hvað ber að gera til að koma í veg fyrir reykeitrun og afleiðingar hennar,
- kunna að bregðast við ef upp kemur eldur í bifreið og geta gripið til aðgerða til að minnka líkur á reykeitrun.
Björgunarstarf.
Ökunemi skal:
- þekkja uppbyggingu björgunar- og leitarkerfis á Íslandi og vita hvernig á að koma beiðnum um aðstoð til viðeigandi aðila,
- þekkja til hvaða viðbragðsaðila hann geti leitað s.s. heilsugæslu,
- geta kallað eftir aðstoð og undirbúið vettvang fyrir björgun.
V. KAFLIVerkleg kennsla.
5.1. Markmið.
Við aksturskennslu fyrir farþegaflutning í atvinnuskyni skal leggja áherslu á að ökunemi sýni mjög góða þekkingu og hæfni í akstri. Að hann geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir akstri með farþega og líti á akstur í umferð sem félagslegt samspil við aðra vegfarendur.
Að loknum kennsluakstri skal ökunemi hafa öðlast leikni í að stjórna bifreið til farþegaflutninga í umferð við krefjandi og fjölbreyttar aðstæður í samræmi við lög og reglur. Hann þarf að geta komið auga á og metið aðsteðjandi hættur í umferðinni og sýna mikla leikni, þekkingu og framsýni. Um leið þarf hann að gæta fyllsta öryggis og passa að allar nauðsynlegar varúðarráðstafanir séu viðhafðar.
Hann þarf að geta hagnýtt sér umferðarlög og reglur við akstur og geta útskýrt ákvæði sem snúa að umferð og búnaði ökutækja með eigin orðum. Ökunemi þarf einnig að sýna getu í hagnýtum atriðum er snúa að viðhaldi og umhirðu bifreiða s.s. eftirlit með slithlutum og forðabúrum. Loks er mikilvægt að ökunemi temji sér mjúkan akstur svo að sem best fari um farþega og þeir upplifi sig örugga.
5.2. Hæfniviðmið.
Öryggisskoðun ökutækis.
Ökunemi skal:
- geta stillt sæti, baksýnisspegla, öryggisbelti og höfuðpúða ökumanns rétt fyrir akstur,
- vera fær um að athuga ástand ökutækis og hvort öryggisatriði séu í lagi,
- kunna að nota mælaborð og annan búnað við vinnustöð ökumanns,
- geta gert sérstakar öryggisráðstafanir varðandi ökutækið: athuga farmrými, dyr, neyðarútganga (D1 og D), öryggisbelti, skyndihjálparbúnað, slökkvitæki og annan öryggisbúnað.
Sérstakar leikniæfingar.
Ökunemi skal:
- hljóta þjálfun í sérstökum æfingum þar sem lögð er áhersla á umferðaröryggi og nákvæmni,
- geta tekið beygju aftur á bak fyrir horn, úr beinni stöðu og aftur í beina stöðu,
- snúa við á vegi (á einungis við um ökutæki í B- og D1-flokki),
- geta gengið frá bifreið á öruggum stað, með öruggum hætti og án hættu fyrir umhverfi.
Akstur í umferð.
Ökunemi skal:
- öðlast færni í að aka út úr stæði, aka af stað eftir að hafa numið staðar í umferð og aka út úr heimreið,
- öðlast færni í að aka eftir beinum vegum, mæta ökutækjum sem koma úr gagnstæðri átt, þar á meðal við þröngar aðstæður,
- öðlast færni í að aka í beygjum,
- öðlast færni í að aka um allar gerðir gatnamóta, að þeim og yfir þau og út úr,
- öðlast færni í að breyta akstursstefnu: beygja til hægri og vinstri, skipta um akrein,
- öðlast færni í að aka inn á eða út af vegum með mismunandi leyfðan hámarkshraða, aka inn í umferð frá aðrein, aka inn á frárein,
- öðlast færni í að aka fram úr öðrum ökutækjum í umferð, aka meðfram hindrunum, til dæmis ökutækjum sem hefur verið lagt, láta önnur ökutæki í umferðinni aka fram úr,
- öðlast færni í að aka um sérstök umferðarmannvirki s.s. biðstöðvar fyrir strætisvagna, gangbrautir, upp og niður langar og brattar brekkur, þrönga vegi, jarðgöng o.fl.,
- öðlast færni í að hemla mjúkt og nauðhemla,
- öðlast færni í að aka á malarvegum og þjóðvegum við mismunandi aðstæður,
- öðlast færni í að gæta viðeigandi varúðarráðstafana þegar farið er inn í eða út úr bifreið við farþegaflutninga, hún stöðvuð eða henni lagt,
- öðlast færni í að sýna aksturshætti sem stuðla að hagkvæmni í rekstri ökutækisins og verndun umhverfis vegna mengunar.
VI. KAFLIPrófkröfur.
6.1. Prófferlið.
Tilgangur ökuprófs er að meta hvort ökunemi búi yfir þeirri þekkingu, hæfni og leikni sem áskilin er til að hann geti stjórnað hlutaðeigandi ökutæki af nægu öryggi og til að fá útgefið ökuskírteini.
Ökupróf til farþegaflutninga í atvinnuskyni skiptist í tvo hluta; bóklegt próf og verklegt próf.
Ökunemi skal hafa staðist bóklegt próf áður en verklegt próf fer fram. Hann skal hafa staðist verklega prófið áður en tólf mánuðir eru liðnir frá því hann stóðst bóklega prófið.
Að loknu hverju prófi tilkynnir prófdómari ökunema hvort hann hafi staðist próf.
Standist ökunemi ekki próf má hann gangast undir próf að nýju að viku liðinni.
6.2. Bókleg próf.
Tilgangur bóklegs prófs er að kanna hvort ökunemi hafi tileinkað sér námsþætti ferðafræðinnar og er prófið á vegum ökuskóla. Ökunemi þarf að standast slíkt próf til að mega gangast undir verklegt próf. Ökuskóli skal fylgja prófreglum sem Samgöngustofa setur.
6.3. Verklegt próf.
Tilgangur verklegs prófs er að kanna hvort ökunemi hafi þá þekkingu, athygli og færni sem þarf til að stunda farþegaflutninga í umferð af fullu öryggi fyrir hann sjálfan, farþega hans og aðra vegfarendur án stuðnings ökukennara.
Verklega prófið er tvíþætt, munnlegt próf og aksturspróf.
Munnlegt próf.
Tilgangur munnlegs prófs er að kanna hvort ökunemi hafi tileinkað sér þá námsþætti verklega námsins sem snúa að öryggisskoðun ökutækisins og hlutverki ökumanns sem ekur farþegum í atvinnuskyni. Munnlegt próf er lagt fyrir ökunema í eða utan við bifreið á undan akstursprófi. Ökunemi þarf að standast munnlegt próf áður en aksturspróf getur hafist.
Aksturspróf.
Tilgangur akstursprófs er að kanna hvort ökunemi hafi tileinkað sér þau atriði sem fram koma í verklegum hluta kennslunnar, það er leikniæfingum og akstri í umferð.
Prófdómari tilkynnir ökunema niðurstöðu akstursprófs að prófi loknu.
B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026