Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
9. júlí 2026
Útgáfudagur
23. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 840/2026
9. júlí 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 962/2013 um sameiginlegar kröfur til notenda loftrýmisins og verklagsreglur vegna notkunar árekstrarvara loftfara.
1. gr.
Eftirfarandi töluliður bætist við 3. gr. reglugerðarinnar:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/343 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1332/2011 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar árekstrarvarakerfi í flugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 521-523.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 115. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 9. júlí 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 23. júlí 2026