Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Þingeyjarsveit

Málaflokkur

Sorphreinsun, Þingeyjarsýslur

Undirritunardagur

11. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1478/2025

11. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu í Þingeyjarsveit.

1. gr.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er heimilt að leggja á árlegt sorphirðugjald (sorphreinsi- og sorpeyðingargjöld) sem innheimta skal með fasteignagjöldum.

2. gr.

Gjaldið er sem hér greinir:

  Íbúðir 79.723 kr.
  Sumarhús og íbúðir í árshlutanotkun 36.636 kr.

Gjaldið er innheimt jafnhliða fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu og þeirra.

Gjalddagar eru átta: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1.ágúst og 1. september.

Þar sem sorphirða fer fram samkvæmt sérstakri þjónustubeiðni skal innheimta sorphirðugjaldsins vera samkvæmt reikningi fyrir sannanlegum kostnaði.

Verð á klippikorti fyrir gámasvæði (4 m³ af úrgangi), 14.871 kr. Eitt klippikort er innifalið í árlegu sorpgjaldi á hverja fasteign í sveitarfélaginu.

3. gr.

Á gámavelli er innheimt eftirfarandi gjald vegna móttöku sorps frá fyrirtækjum og öðrum en klippikorthöfum:

Fyrir áætlað lágmarksmagn allt að 100 kg eða 1,5 m³ skal greiða móttöku- og flutningsgjald, 6.987 kr., og í urðunargjald 7.884 kr.

Fyrir hvert kíló umfram 100 kg greiðist samtals í móttöku- og flutningsgjald 70 kr. og 81 kr. í urðunargjald og fyrir hvern 1,5 m³ umfram 1,5 m³ bætist við 6.987 kr. fyrir móttöku- og flutningsgjald og 7.884 kr. í urðunargjald.

Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 8. gr. samþykktar nr. 541/2000 um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og staðfest á fundi hennar 11. desember  2025 og öðlast gildi við birtingu og kemur til framkvæmda við álagningu gjalda á árinu 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Þingeyjarsveit, nr. 1753/2024.

Þingeyjarsveit, 11. desember 2025.

Gerður Sigtryggsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál