Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjarðabyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Fjarðabyggð
Undirritunardagur
19. maí 2026
Útgáfudagur
3. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 625/2026
19. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Fjarðabyggð.
Óveruleg breyting á deiliskipulaginu Stekkir 1, Reyðarfirði.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í gildi er deiliskipulagið Stekkir 1, samþykkt 8. júní 2002.
Breytingin tekur til lóðar við Stekkjarbrekku 15. Með breytingunni er lóðin stækkuð til austurs um 10 metra og fer úr því að vera 875 m² í 1.225,08 m². Byggingarreitur lóðarinnar er jafnframt leiðréttur í samræmi við núverandi legu hússins.
Að öðru leyti gilda skilmálar eldra skipulags.
Fjarðabyggð, 19. maí 2026.
Aron Leví Beck skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 3. júní 2026