Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hrunamannahreppur
Undirritunardagur
23. september 2026
Útgáfudagur
8. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1072/2026
23. september 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Hrunamannahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Birkibyggð, skilgreining íbúðarbyggðar.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem tekur til Birkibyggðar. Í deiliskipulaginu felst að settir eru skilmálar fyrir íbúðarbyggð í Birkibyggð í samræmi við ákvæði aðalskipulagsbreytingar, þar sem svæðinu var breytt úr frístundabyggð í íbúðarbyggð ÍB12 í dreifbýli. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. Einnig bárust athugasemdir frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun sem eru lagðar fram við afgreiðslu.
Samþykkt í sveitarstjórn 17. september 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 23. september 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026