Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
17. apríl 2026
Útgáfudagur
5. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 437/2026
17. apríl 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Vaðholt, L219744, skilmálabreyting á byggingargerð og byggingarmagni.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags Vaðholts, L219744, í landi Ormsstaða. Í breytingunni felst að á reit B verði heimilt að reisa gestahús allt að 100 fm í stað íbúðarhúss allt að 250 fm.
Samþykkt í sveitarstjórn 4. mars 2026.
Deiliskipulagsbreyting, Öndverðarnes 1, L168299, aukið byggingarmagn.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem nær til þriggja deiliskipulagssvæða frístundabyggðar (F33). Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni. Aðalhús skal ekki vera stærra en 200 fm að grunnfleti, en nýtingarhlutfall skal þó aldrei vera meira en 5% af stærð lóðar. Hámarkshæð mænis frá gólfi er 6,0 metrar, en frá jörðu 6,5 metrar. Önnur hús á lóð skulu hafa hámarkshæð 3,5 metra frá gólfi og 4,0 metra frá jörðu. Almennt skal hæð frá gólfkóta að aðliggjandi landi ekki vera meiri en 0,5 metrar. Heimilt er að byggja kjallara undir húsi þar sem aðstæður gefa tilefni til, svo sem þar sem landhalli er til staðar. Einnig er heimilt að byggja geymsluhús eða gestahús allt að 40 fm innan nýtingarhlutfalls ofanjarðar. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags.
Samþykkt í sveitarstjórn 13. apríl 2026.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 17. apríl 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026