Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Fólksflutningar
Undirritunardagur
21. maí 2026
Útgáfudagur
12. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 675/2026
21. maí 2026
REGLUR
Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um fargjaldaálag.
1. gr.
Starfsmanni á vegum Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. er heimilt að krefja farþega um fargjaldaálag, sbr. 30. gr. a. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017, geti viðkomandi ekki sýnt fram á greiðslu rétts fargjalds þegar eftir því hefur verið leitað.
2. gr.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. bera ábyrgð á því að greiðslukerfi á vegum þess virki sem skyldi. Ef telja má eðlilega virkni greiðslukerfis Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. hafi hamlað greiðslu rétts fargjalds verður fargjaldaálags ekki krafist.
3. gr.
Fjárhæð fargjaldaálags skal vera 18.000 kr. hafi farþega borið að greiða fullt fargjald.
Ungmenni á aldrinum 15-17 ára sem og aldraðir, 67 ára og eldri, verða krafin um 9.000 kr. fargjaldaálag í samræmi við veittan afslátt af fullu fargjaldi.
Öryrkjar verða krafðir um fargjaldaálag í samræmi við veittan afslátt af fullu fargjaldi, 5.400 kr.
Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.
4. gr.
Farþega sem krafinn er um fargjaldaálag er frjálst að staðgreiða álagið, en að öðrum kosti verður honum sendur greiðsluseðill til innheimtu þess. Veittur er 20% afsláttur ef fargjaldaálag er staðgreitt.
5. gr.
Telji farþegi ákvörðun um að krefja hann um fargjaldaálag byggða á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik getur hann óskað þess að Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. taki hana til endurskoðunar. Um endurskoðun fargjaldaálags fer samkvæmt 4. mgr. 30. gr. a. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
6. gr.
Reglur þessar sem stjórn Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. samþykkti 25. mars 2026 staðfestast hér með samkvæmt 3. mgr. 30. gr. a. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 og öðlast gildi 1. júlí 2026.
Innviðaráðuneytinu, 21. maí 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026