Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

26. janúar 2016

Útgáfudagur

10. febrúar 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 107/2016

26. janúar 2016

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 1042/2003 um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar „1. ágúst“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: 20. júlí.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu læknadeildar með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum framhaldsskóla og Menntamálastofnun. Inntökuprófið tekur tvo daga, og samanstendur af fjórum tveggja tíma próflotum og aðgangsprófi fyrir háskólastig (A-prófi) sem tekur 3,5 klst. A-prófið gildir 30% af inntökuprófinu.
  2. Í stað orðanna „Námsmatsstofnun (www.namsmat.is)“ í 2. málsl. 8. mgr. kemur: Menntamálastofnun (www.mms.is).
  3. Í stað orðsins „Námsmatsstofnun“ í 2. málsl. 13. mgr. kemur: Menntamálastofnun.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 26. janúar 2016.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2016

Tengd mál