Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
18. apríl 2026
Útgáfudagur
6. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 446/2026
18. apríl 2026
REGLUR
um breytingu á reglum um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 244/2014.
1. gr.
4. málsl. 3. mgr. 3. gr. reglnanna orðast svo:
Fái nemandi leyfi til skráningar greiðir hann skrásetningargjald með 15% álagi, sbr. 2. gr., eigi síðar en 4. ágúst og staðfestir þar með skrásetningu sína í háskólann.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða 4. gr. reglnanna:
- Í stað tölunnar „75.000“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur talan: 100.000.
- Í stað tölunnar „55.000“ í 1. tölulið 1. mgr. koma orðin: 25% afsláttur af skráningargjaldi.
- Í stað tölunnar „10.000“ í 2. tölulið 1. mgr. kemur talan: 15.000.
- Í stað tölunnar „10.000“ í 3. tölulið 1. mgr. kemur talan: 15.000.
- Í stað tölunnar „20.000“ í 4. tölulið 1. mgr. kemur talan: 30.000.
3. gr.
12. gr. reglnanna orðast svo:
| Stúdentakort | 2.400 kr. |
| Stúdentakort - skilagjald | -1.600 kr. |
Kostnaður felst í korti með örgjörva og prentun á kortið. Hluti kostnaðar er endurgreiddur er korti er skilað.
4. gr.
15. gr. reglnanna, ásamt heiti, orðast svo:
Verðskrá fyrir kvikmyndun og streymi Myndveitu
vegna starfsemi Háskóla Íslands.
| Streymi allt að tveimur klst. þar sem tækjabúnaður er til staðar | 30.000 kr. |
| Streymi 2-4 klst. þar sem tækjabúaður er til staðar | 60.000 kr. |
| Streymi þar sem tækjabúnaður er ekki til staðar | 105.000 kr. |
| Upptökur í myndveri Setbergs, tvær klst. með eftirvinnslu | 75.000 kr. |
| Upptökur á vettvangi, hálfur dagur | 65.000 kr. |
| Upptökur á vettvangi, heill dagur | 110.000 kr. |
5. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði, eru settar í samræmi við 71. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, með heimild í c-lið 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og 4. mgr. 19. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 18. apríl 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026