Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

21. september 2026

Útgáfudagur

5. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1059/2026

21. september 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns, 2. áfanga, fyrir Títanhellu 19.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17. september 2026 breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns, 2. áfanga, fyrir Títanhellu 19. 

Breytingin felst í að innkeyrslan inn á lóðina er færð um 21 m, nýtingarhlutfall helst óbreytt.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hafnarfirði, 21. september 2026.

F.h. skipulagsfulltrúa,

Aleksandra Wegrzyniak þjónustufulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026

Tengd mál