Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. maí 2011
Útgáfudagur
6. júní 2011
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 553/2011
12. maí 2011
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 480/2010 um Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands.
1. gr.
Heiti reglnanna, sem settar voru 18. maí 2010, breytist og verður:
Reglur um Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands.
2. gr.
Yfirskrift 8. gr. breytist og verður:
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra og aðrir starfsmenn.
3. gr.
Yfirskrift 9. gr. breytist og verður:
Forstöðumenn rannsóknasetra.
4. gr.
Orðin „Stofnun fræðasetra“ í 1. mgr. 1. gr., 3. mgr. 8. gr., 1. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. breytast og verða (í viðeigandi beygingarfalli): Stofnun rannsóknasetra.
5. gr.
Orðin „rannsókna- og fræðasetur“ í 1. og 2. mgr. 3. gr., 5. mgr. 7. gr., 2. mgr. 8. gr., 1. og 2. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 11. gr. breytast og verða (í viðeigandi beygingarfalli): rannsóknasetur.
6. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. maí 2011.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 6. júní 2011