Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Vörumerki
Undirritunardagur
11. desember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1355/2025
11. desember 2025
AUGLÝSING
um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja.
1. gr. Gildissvið.
Í samræmi við 16. gr. laga um vörumerki, nr. 45/1997, og ákvæði Nice-samningsins frá 15. júní 1957 um alþjóðlega flokkun vöru og þjónustu vegna skráningar vörumerkja, gildir eftirfarandi flokkaskrá fyrir vörur og þjónustu vegna skráningar vörumerkja. Flokkaskráin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Flokkaskráin er í samræmi við 13. útgáfu alþjóðlegu skrárinnar um flokkun vöru og þjónustu við skráningu vörumerkja samkvæmt Nice-samningnum sem tekur gildi 1.janúar 2026. Til fyllingar áðurnefndri flokkaskrá er jafnframt notast við sameiginlegan gagnagrunn vöru- og þjónustulýsinga frá Evrópsku hugverkastofunni, EUIPO, sem byggir á Nice-samningnum.
Flokkaskráin er uppfærð með rafrænum hætti um hver áramót.
2. gr. Breytingar 1. janúar 2026.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á íslenskri þýðingu á yfirskriftum flokkaskrárinnar frá og með 1. janúar 2026:
- Orðin „kítti og önnur fyllingarefni“ í flokki 1 falla brott.
- Í stað orðanna „ilmvörur, ilmolíur“ í flokki 3 komi: ilmvötn.
- Í stað orðanna „Handverkfæri og handknúin tól“ í flokki 8 komi: Handknúin handverkfæri og -tól.
- Eftirfarandi breytingar verða á flokki 9:
- Í stað orðanna „upptekið og niðurhalanlegt efni“ komi: uppteknar og niðurhalanlegar margmiðlunarskrár.
- Orðin „og sundfólk“ falla brott.
- Á eftir „gervilimir, -augu og -tennur;“ í flokki 10 kemur: gleraugu, augnlinsur og sólgleraugu;
- Orðin „fléttuborðar og“ í flokki 26 falla brott.
- Yfirskrift flokks 29 verður: Kjöt, fiskur, alifuglar og villibráð; kjötkraftur til matreiðslu; niðursoðnir, frosnir, þurrkaðir og soðnir ávextir, grænmeti og þari; ávaxtahlaup, -sultur og -grautar; egg; mjólk, ostur, smjör, jógúrt og aðrar mjólkurafurðir; olíur og feiti til matar.
3. gr. Gildistaka og brottfall.
Auglýsing þessi gildir frá og með 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja, nr. 1365/2023.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 11. desember 2025.
Logi Már Einarsson.
Sigríður Valgeirsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025