Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
2. júní 2023
Útgáfudagur
19. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 605/2023
2. júní 2023
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 244/2014 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglnanna:
- Orðin „pr. bls., hámark kr. 1.750“ í fjórðu línu töflunnar falla brott.
- Í stað orðanna „kr. 350“ í fjórðu línu töflunnar koma orðin: kr. 450.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við heimild í 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 2. júní 2023.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 19. júní 2023