Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
22. september 2025
Útgáfudagur
7. október 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 26/2025
22. september 2025
AUGLÝSING
um birtingu á ESB-gerð á sviði fjármálaþjónustu sem taka á upp í EES-samninginn.
Til stendur að taka eftirtalda reglugerð upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993 þar sem samningurinn var upphaflega birtur:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/1215 frá 17. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf samkvæmt hlutfalli stöðugrar fjármögnunar.
Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Birtingin er liður í undirbúningi þess að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvarp til innleiðingar á reglugerðinni í íslenskan rétt, með þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið við upptöku hennar í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin verður jafnframt á síðara stigi birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. september 2025.
F.h.r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Gunnlaugur Helgason.
C deild — Útgáfudagur: 7. október 2025