Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
7. desember 2022
Útgáfudagur
20. september 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 87/2022
7. desember 2022
AUGLÝSING
um fjölhliða samning um stofnun samevrópsks flugsvæðis.
Hinn 8. mars 2007 var aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna fjölhliða samnings milli Evrópubandalagsins og aðildarríkja þess, Lýðveldisins Albaníu, Borgaralegrar stjórnsýslu Sameinuðu þjóðanna í Kósovó, Bosníu og Hersegóvínu, Lýðveldisins Búlgaríu, lýðveldisins Íslands, Lýðveldisins Króatíu, Makedóníu, fyrrum Lýðveldis Júgóslavíu, Konungsríkisins Noregs, Rúmeníu, Lýðveldisins Serbíu og Lýðveldisins Svartfjallalands um stofnun samevrópsks flugsvæðis sem gerður var í Lúxemborg 9. júní 2006. Samningurinn öðlaðist gildi 1. desember 2017.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 7. desember 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
Anna Jóhannsdóttir.
C deild - Útgáfud.: 20. september 2024