Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Landskjörstjórn

Málaflokkur

Kosningar, Þjóðaratkvæðagreiðslur

Undirritunardagur

20. mars 2026

Útgáfudagur

24. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 281/2026

20. mars 2026

REGLUR

um útlit og frágang kjörseðla sem nota skal við þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli 2. mgr. 2. gr. kosningalaga.

1. gr. Markmið.

Markmið reglna þessara er að kveða á um útlit og frágang kjörseðla við þjóðaratkvæðagreiðslur til að tryggja samræmda og örugga framkvæmd kosninga.

2. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um útlit og frágang kjörseðla við þjóðaratkvæðagreiðslur þegar Alþingi ályktar að fram skuli fara almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni eða lagafrumvarp samkvæmt 2. mgr. 2. gr. kosningalaga.

3. gr. Ábyrgð á gerð kjörseðla.

Landskjörstjórn lætur gera kjörseðla og kjörgögn sem notuð eru við þjóðaratkvæðagreiðslur og lætur kjörstjórum og yfirkjörstjórnum í té í samræmi við reglugerð um kjörgögn og önnur aðföng við kosningar o.fl.

4. gr. Gerð kjörseðils.

Kjörseðill skal vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum, a.m.k. 160 g/m² að þyngd.

Kjörseðill skal vera með broti þannig að kjósandi geti brotið hann saman svo ekki sjáist í texta eða merkingar á kjörseðli (óprentaða hliðin snýr út) og að hann falli vel og haganlega í atkvæðakassann. Tryggja skal að brotið falli ekki í prentaðan texta á seðlinum og að brúnir kjörseðilsins skarist að lágmarki um 2 mm þegar honum er lokað.

Skipta skal um lit á kjörseðlum við hverja þjóðaratkvæðagreiðslu. Landskjörstjórn ákveður lit kjörseðla hverju sinni. Kjörseðill við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar skal vera í öðrum lit en sá sem notaður er á kjörfundi.

5. gr. Kjörgögn við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

Við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar skal kjörseðill vera sá sami og við kosningu á kjörfundi, að lit frátöldum, sbr. 4. gr. Kosningaathöfnin fer fram með sama hætti og önnur atkvæðagreiðsla utan kjörfundar samkvæmt kosningalögum, eftir því sem við á. Um gerð og útlit kjörseðlisumslags, fylgibréfs og sendiumslags fer samkvæmt kosningalögum og reglugerð um kjörgögn og önnur aðföng við kosningar o.fl.

6. gr. Blindraspjald.

Landskjörstjórn lætur gera blindraspjald til notkunar á kjördag. Blindraspjald er spjald jafnstórt kjörseðli á kjörfundi með upphleyptum valkostum á blindraletri, með glugga framan við hvern valkost og vasa á bakhlið þannig að kjósandi geti í gegnum gluggann sett kross framan við þann valkost sem hann velur.

7. gr. Orðalag á kjörseðli.

Um orðalag og framsetningu þeirrar spurningar sem lögð er fyrir kjósendur á kjörseðli, fer samkvæmt ályktun Alþingis. Sama gildir ef Alþingi ákveður að spurningar og svarkostir á kjörseðli verði fleiri eða orðaðir með öðrum hætti.

8. gr. Útlit kjörseðils.

Kjörseðla við þjóðaratkvæðagreiðslu skal útbúa þannig:

Í fyrirsögn efst fyrir miðju skal tilgreint að um sé að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu, dagsetningu hennar og ártal. Skal orðið „Þjóðaratkvæðagreiðsla“ vera í efri línu en fyrirhuguð dagsetning og ártal þjóðaratkvæðagreiðslunnar í neðri línu. Þar fyrir neðan skal vera breitt lárétt strik sem nær yfir allan kjörseðilinn.

Fyrir neðan strikið kemur feitletraður texti fyrir miðju þar sem segir með skýrum hætti að merkja skuli X í ferning fyrir framan þann svarkost eða þá svarkosti sem kjósandi velur. Séu spurningar fleiri en ein skal einnig koma fram að kjósandi geti sleppt því að svara einstökum spurningum. Fyrir neðan textann skal vera sams konar lárétt strik og mælt er fyrir um í 3. málsl. 2. mgr.

Fyrir neðan neðra strikið, frá vinstri hlið seðilsins skal koma texti þeirrar spurningar eða spurninga sem greiða á atkvæði um. Þar fyrir neðan, en örlítið inndregið, skulu koma svarkostir hvor eða hver fyrir neðan annan. Fyrir framan svarkostina skulu vera jafnstórir ferningar. Innihaldi svarkostir ,,Já“ eða „Nei“ skal svarkostur „Já“ vera fyrir ofan svarkost „Nei“. Séu svarkostir fleiri skulu þeir koma fyrir neðan svarkost „Nei“. Séu spurningar fleiri en ein skal koma grannt lárétt strik á milli þeirra.

Á kjörseðilinn skal nota skýra og aðgengilega leturgerð sem ekki er krókaletur.

9. gr. Skýringartexti.

Beri þingsályktun með sér að kjörseðill skuli geyma skýringartexta skal hann vera skáletraður neðst á seðlinum með sambærilegu letri og sú spurning sem lögð er fyrir kjósanda. Fyrir ofan skýringartexta skal vera breitt lárétt strik.

10. gr. Aðrar reglur.

Að öðru leyti en í þessum reglum greinir gildir reglugerð um kjörgögn og önnur aðföng við kosningar o.fl. um útlit og frágang kjörseðla við þjóðaratkvæðagreiðslur.

11. gr. Gildistaka.

Reglur þessar sem settar eru samkvæmt 5. mgr. 66. gr. kosningalaga öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglna þessa falla úr gildi reglur um útlit og frágang kjörseðla við þjóðaratkvæðagreiðslur sem Alþingi hefur ályktað um, nr. 713/2012.

Landskjörstjórn, 20. mars 2026.

Kristín Edwald.

Arnar Kristinsson.

Indriði Ingi Stefánsson.

Ebba Schram.

Magnús Karel Hannesson.

Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 24. mars 2026

Tengd mál