Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

21. maí 2026

Útgáfudagur

22. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 11/2026

21. maí 2026

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingum á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerðir öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 547/2026 um (67.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/814 frá 1. apríl 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Chile (Síle), Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 1 með auglýsingu þessari.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/853 frá 10. apríl 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Chile (Síle) og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 2 með auglýsingu þessari.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/914 frá 21. apríl 2026 um breytingu á V., XIII. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Botsvana, Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum dýrum og afurðum úr dýraríkinu til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 3 með auglýsingu þessari.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/981 frá 24. apríl 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Chile (Síle) og Breska konungsríkið í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 4 með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. maí 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

C deild — Útgáfudagur: 22. maí 2026

Tengd mál