Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
19. maí 2025
Útgáfudagur
30. maí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 587/2025
19. maí 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 244/2014 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 17. gr. reglnanna:
- Í stað tölunnar „1.950“ í 1. mgr. kemur talan: 1.500.
- Í stað tölunnar „1.100“ í 4. mgr. kemur talan: 950.
- 5. mgr. orðast svo: Hópar sem telja fleiri en 15 manns fá afslátt og skal hver meðlimur hópsins borga 1.100 kr. fyrir aðgöngumiðann, 750 kr. ef um eldri borgara er að ræða.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði, eru settar með stoð í c-lið 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, taka þegar gildi.
Háskóla Íslands, 19. maí 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 30. maí 2025