Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
11. febrúar 2025
Útgáfudagur
26. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 200/2025
11. febrúar 2025
REGLUR
um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um dreifingu skaðatrygginga og þeirra persónutrygginga sem falla undir 20. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, sbr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.
2. gr. Staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga.
Reglur þessar eru settar til að innleiða reglugerð (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 sem mælir fyrir um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarafurð. Skal ákvæðum hennar fylgt við samningu og miðlun staðlaðs upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga, sbr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarafurð, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 304/2019 frá 13. desember 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 58-59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 31. mars 2021, bls. 3-7.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga, öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglur Seðlabanka Íslands nr. 1411/2021 um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals vegna skaðatryggingar.
Seðlabanka Íslands, 11. febrúar 2025.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig
Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2025