Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Landamæri

Undirritunardagur

19. september 2025

Útgáfudagur

25. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 61/2025

19. september 2025

AUGLÝSING

um gildistöku ákvæðis um komu- og brottfararkerfið í lögum nr. 136/2022 um landamæri.

Í samræmi við 5. mgr. 24. gr. laga nr. 136/2022 um landamæri tilkynnist hér með að ákvæði 16. gr. um komu- og brottfararkerfi, að undanskildum d-lið 5. mgr. og 2. málsl. 6. mgr. 16. gr. öðlast gildi 12. október 2025. Komu- og brottfararkerfið verður tekið í notkun í áföngum á landamærastöðvum Íslands í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/1534 frá 18. júlí 2025 um tímabundnar undanþágur frá tilteknum ákvæðum reglugerða (ESB) 2017/2226 og (ESB) 2016/399 að því er varðar töku komu- og brottfararkerfisins í notkun í áföngum.

Dómsmálaráðuneytinu, 19. september 2025.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

A deild — Útgáfudagur: 25. september 2025

Tengd mál